top of page

Sjávarsýn - View from the Sea ljósmyndasýning í Ljósmyndsafni Reykjavíkur

508A4884.JPG

fimmtudagur, 25. maí 2023

Sjávarsýn - View from the Sea ljósmyndasýning í Ljósmyndsafni Reykjavíkur

Þann 3. júní kl 15-17 opnar Giita Hammond ljósmyndasýninguna ´Sjávarsýn - óður til hafsins og vináttu kvenna´ í Skotinu, Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Léttar veitingar í boði.

‘Sjávarsýn‘ er ljósmynda - og vídeóverk eftir Giitu Hammond. Myndirnar tók hún syndandi í sjónum með vinkonum sínum í Dublin á Írlandi á fyrsta og hálfa ári Covid faraldursins. Verkið fjallar um frelsið sem þær fundu í hafinu og styrkingu vináttunnar sem var mikilvægur þáttur í að halda geðheilsu á tímum mikilla takmarka.  Sjórinn virkar í senn kaldur, djúpur og fráhrindandi en verður fljótt seiðandi mjúkur, umvefjandi og huggandi. ‘Sjávarsýn’ hefur draumkenndan blæ, er mynduð með sama lágrétta sjónarhorninu og með lítinn hluta myndarinnar í fókus. Það er eins og áhorfandinn sé líka í sjónum með þeim.  

Myndirnar eru teknar í 50-100 metra fjarlægð frá landi í kringum Sandycove og Forty Foot í Dublin í öllum veðrum og á mismunandi tíma dags. Tilgangur myndatökunnar var í fyrstu að afla heimilda um þetta skrýtna tímabil en þróaðist yfir í umfangsmeira verkefni og varð mun persónulegra og átakanlegra þegar leið á tímann. Útkoman varð ‘Sjávarsýn  - óður til hafsins og vináttu kvenna‘.  

Giita Hammond er af íslenskum og írskum ættum. Hún hefur fengist við ljósmyndun og myndlist frá unga aldri. Tvítug flutti hún frá Íslandi til Dublin á Írlandi, nam þar margmiðlun og síðan ljósmyndun í Institute of Art, Design & Technology (IADT) þaðan sem hún lauk B.A. gráðu. List Giitu einkennist af sterkum samtímamyndum, innblásnar af náttúrunni, vatni og náttúrlegu birtu.  

Fyrir utan lausamennsku sem ljósmyndari hefur Giita einnig kennt ljósmyndun í um 10 ár. Verkin hennar hafa verið sýnd á samsýningum sem einkasýningum. Má þar nefna tvær einkasýningar í Dublin á síðasta ári: ‘Maureen’ sem er persónulegt verk um írsku ömmu hennar sem glímir við heilabilun og ‘View from the Sea’ sem haldin var í The Darkroom, Dublin á Photo Ireland hátíðinni í júlí 2022 styrkt af The Arts Council of Ireland. Eftir margra ára fjarveru er Giita aftur flutt til Reykjavíkur með fjölskyldunni og er að vinna að persónulegum verkefnum.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page