top of page

Silja Jónsdótttir : Allt í einu allsstaðar; tvíeggja sverð og óhlutbundnir áttavitar

508A4884.JPG

þriðjudagur, 11. ágúst 2026

Silja Jónsdótttir : Allt í einu allsstaðar; tvíeggja sverð og óhlutbundnir áttavitar

Á sýningunni má líta rennd keramikverk, lágmyndir úr gleri og þurrpastels klippimyndir. Verkin eru innblásin af skyldleika ýmissa forma sem finna má í náttúrunni, og hvernig eitt verður að öðru þegar fókusinn færist til. Með ímyndunaraflinu geta formin breyst í tákn sem hægt er að túlka og fylgja eftir, en þegar þau slípast til verða fuglar, fiskar, kvistir, menn og fræ öll að mislöngum sporöskjum eins og Venus III frá Willendorf. Þegar hún fannst var það eitt víst að átt hafði verið við fílabeinið með verkfæri. Samt gáfu vísindamennirnir henni nafn ástargyðjunnar sem ekki var til fyrir 30.000 árum þegar fílabeinið var skorið í þetta óræða form sem líkist í senn öllu og engu.
Silja Jónsdóttir (f. 1998) er myndlistarmaður og keramiker sem býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA-próf í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022 og stundar nú nám við Keramikdeild Myndlistarskólans í Reykjavík.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page