top of page

Sigurður Guðjónsson: Leiðni leiðir í Verksmiðjunni á Hjalteyri

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. maí 2023

Sigurður Guðjónsson: Leiðni leiðir í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Myndlistarsýningin „Leiðni leiðir” eftir Sigurð Guðjónsson opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri
laugardaginn 20. maí, kl. 14:00.

Listamaðurinn Sigurður Guðjónsson hefur umbreytt 2000 fermetra verksmiðjurými í
fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. Verk sem leikur með tíma og orku. Sigurður vinnur út frá
miðju hússins lóðrétt upp og niður þrjár hæðir og hugsar sýninguna sem einn stóran skúlptúr
samofin byggingunni sjálfri. Fyrir honum er verksmiðjan eitt stórt hljóðumhverfi, þannig að
vængirnir – gamlar mjölgeymslur, austan og vestan megin – væru þá sem sitthvor rásin, hægri og
vinstri, í einskonar stereo-mynd. Í milliloftinu eru holur en þar nær hljóð að smjúga inn á milli og
elta gesti á ferð sinni í gegnum verkið. Hljóðheimur sýningarinnar er unninn í lögum og á uppruna
sinn í rafhljóðum sem koma úr myndefninu sjálfu, sem og upptökum af endurómi í innviðum
flygils, sem Tinna Þorsteinsdóttir leikur á. Það má því segja að hljóðmyndin eigi í samræðu við
hljóminn í verksmiðjunni sjálfri og vídeóið við rými hennar. Umsjón með sýningunni hefur Gústav
Geir Bollason. Sýningin stendur til 16. júlí, 2023.

Sigurður Guðjónsson (f. 1975) er þekktastur fyrir tímatengd verk sem rannsaka manngerðar vélar og
tækniminjar, í tengslum við eðlislæga þætti þeirra. Með því að sameina mynd og hljóð með
áhrifamiklum hætti, býr listamaðurinn til flókin, marglaga verk sem skapa sláandi upplifun fyrir
áhorfandann. Sigurður hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir sýninguna Innljós, sem
samanstóð af vídeóinnsetningum í Sankti Jósepsspítala í Hafnarfirði. Sigurður Guðjónsson var
fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page