top of page

Sigurður Örlygsson í 80 ár

508A4884.JPG

fimmtudagur, 23. júlí 2026

Sigurður Örlygsson í 80 ár

Sigurður Örlygsson myndlistarmaður (1946-2019) hefði fagnað 80 ára afmæli nú í ár. Af því tilefni verður sett upp sýning með úrvali verka frá öllum ferli hans í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5.

Sigurður Örlygsson myndlistarmaður (1946-2019) hefði fagnað 80 ára afmæli nú í ár. Af því tilefni verður sett upp sýning með úrvali verka frá öllum ferli hans í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5.

Þér er boðið að vera við opnunina laugardaginn 25. júlí klukkan 14:00.

Sýningunni fylgir nýr texti um Sigurð og list hans. Léttar veitingar í boði og lifandi tónlist í anda listamannsins. Sýningin stendur til 19. ágúst.


Sigurður Örlygsson fæddist í Hafrafelli í Laugardalnum í Reykjavík, 28. júlí 1946. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1967-71, Det Kongelige Danske Kunstakademi hjá prófessor Richard Mortensen 1971-72 og síðar við Art Students League of New York 1974-75. Þá kenndi hann við Myndlista- og handíðaskólann lengi og síðar Listaháskóla Íslands og Myndlistarskólann í Reykjavík. Sigurður hélt fjölda einkasýninga og samsýninga meðan hann starfaði, jafnt innanlands og utan. Hann hlaut Menningarverðlaun DV árið 1989 og af og til úhlutun frá starfslaunum listamanna.


Í bernsku vakti hann athygli í fréttum fyrir módelsmíði sína af Reykjavík í árdögum. Á námsárum í MHÍ var hann ein af driffjöðrunum sem máluðu hrörleg húsin á Bernhöftstorfunni þegar áætlanir voru uppi um niðurrif. Fyrsta sýning hans var í Unuhúsi árið 1971 og fékkst hann þá við strangflatar geómetríu, en með tímanum víkkuðu stöðugt efnistökin og áþekkjanleg fyrirbæri og fígúrur fóru að festa sér sess í myndmálinu. Svo bættust við þrívíðir hlutir á rammann. Tímabil stórra málverkafleka sem sýndu afbyggðar vélar og uppfinningar ættaðar úr gömlum vísindaskáldskap, hvar blikur voru á lofti í þrútnu andrúmslofti óræðrar þokudrungaðrar náttúru vakti mikla athygli. Á tíunda áratugnum tóku við draumkenndar fjölskyldu fantasíur, oft sjálfsævisögulegar og persónulegar. Upp úr aldamótum dvaldi hann í Indlandi tæpt ár og málaði þar af krafti. Reykjavík og arkitektúr borgarinnar var yrkisefnið á sýningu tileinkaðri Reykjavík á 224 ára afmæli borgarinnar með jafn mörgum myndum og árin töldu. Á seinni hluta ferilsins fékkst hann við vatnsliti um tíma, gerði seríur um fugla og konu svo eitthvað sé nefnt, en undir lokin var hann kominn aftur til baka á upphafsreit og fékkst aftur við afstraktlist á mörkum hins fígúratíva. Sigurður lést á Landspítala Íslands eftir erfið veikindi árið 2019.


Aðstandendur Sigurðar Örlygssonar

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page