top of page

Sigurður Ámundason: ÚTHVERFAVIRKI sýningar á Breiðdalsvík, Eskifirði og í Neskaupstað

508A4884.JPG

fimmtudagur, 2. október 2025

Sigurður Ámundason: ÚTHVERFAVIRKI sýningar á Breiðdalsvík, Eskifirði og í Neskaupstað

Laugardaginn 4. október n.k. opna sýningar Sigurðar Ámundasonar ÚTHVERFAVIRKI í Múlanum Neskaupstað, Safnaðarheimili Eskifjarðarkirkju og Beljandi Brugghúsi á Breiðdalsvík

Opnunarhátíðin 4. október varir frá kl. 14 – 18 þar sem farið verður á milli staða í rútu og sýningarnar standa til sunnudagsins 26. október. Reglulegur opnunartími verður auglýstur síðar.

Sýning Sigurðar Ámundasonar ÚTHVERFAVIRKI á Seltjarnarnesi verður opnuð helgina 8.-9. nóvember.

Sigurður Ámundason er fæddur 1986 og lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2012. Meðal nýlegra verkefna og sýninga má nefna Rómantísk gamanmynd, leikrit unnið í samstarfi við Jóhann Kristófer Stefánsson og Tatjönu Dís Aldísar Razoumeenko (2025). After The Sun: Forecasts From the North í Buffalo AKG Art Museum (2024). Hvað er hvað var hvað verður - Ars Longa, Djúpavogi (2023), Billboard 450 led auglýsingaskjáir á höfuðborgarsvæði – Rétthermi (2023), Hið ósagða, leikrit (handritshöfundur, leikstjóri, leikari) (2022), What´s Up Ave Maria? Í Hafnarborg (2022), og Raw Power – Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi (2021).

Sigurður er áræðinn við að prófa sig áfram með mismunandi listform. Hann hefur unnið jafnt og þétt að því að þróa sitt eigið myndmál að mestu óháð ríkjandi straumum og stefnum. Efnisnotkunin er nokkuð óvenjuleg og hann fer óhræddur út í almenningsrýmið og fangar þar athygli með einstöku myndmáli.

Listasafn ASÍ býr við ágætan húsakost en er um þessar mundir starfrækt án þess að hafa yfir eigin sýningarsal að ráða. Á meðan þetta tímabundna ástand varir hefur safnið átt gjöfult og gott samstarf við stofnanir, samtök og einstaklinga víðsvegar um landið og skipulagt með þeim sýningar á bæði eldri og nýrri verkum.

Sigurður Ámundason er fimmti listamaðurinn sem velst til þátttöku í sýningaröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu. Safnið kallar reglulega eftir tillögum frá myndlistarmönnum sem vilja taka þátt í sýningarröðinni og eitt verkefni valið hverju sinni. Sýningarstaðirnir eru valdir í samvinnu við listamennina sem taka þátt og eru til skiptis á höfuðborgarsvæðinu og í öðrum landshlutum.

Staðirnir sem urðu fyrir valinu fyrir sýningar Sigurðar Ámundasonar eru Neskaupstaður, Eskifjörður og Breiðdalsvík á Austfjörðum og Seltjarnarnes á höfuðborgarsvæðinu. Við val á sýningarstöðum nýtur listamaðurinn og safnið dyggrar aðstoðar frá ýmsum aðilum þ.m.t. aðildarfélögum ASÍ á viðkomandi svæði, sveitarfélögum, menningarmiðstöðvum, fyrirtækjum og einstaklingum.

Samhliða sýningunum eru haldin myndlistarnámskeið fyrir leik- og grunnskólabörn þar sem unnið er m.a. með elstu verkin í safneigninni og gerðar stuttmyndir fyrir heimasíðu safnsins.

Listráð Listasafns ASÍ skipa Daníel Björnsson og Dorothée Kirch ásamt Elísabetu Gunnarsdóttur safnstjóra.

Sýningarstjóri sýninga Sigurðar Ámundasonar ÚTHVERFAVIRKI er Elísabet Gunnarsdóttir.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page