Jóhannes S. Kjarval : Kjarval á Austurlandi

fimmtudagur, 24. september 2026
Jóhannes S. Kjarval : Kjarval á Austurlandi
Listasafn Islands, föstudaginn 2. október kl 17:00 - 19:00
Kjarval á Austurlandi er sýning á landslagsmyndum og mannamyndum frá Austurlandi eftir
Jóhannes S. Kjarval (1885-1972). Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar Kjarvals og þangað
lagði hann oft leið sína á fullorðinsárum og sótti þá efnivið verka sinna til hins tignarlega
landslags á Austurlandi. Verkin, sem flest eru úr fórum Listasafns Íslands, spanna tímabilið
frá 1919 til 1960; olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar. Sum verkanna
birta þekkjanlega staði, eins og Dyrfjöll og Álfaborg í Borgarfirði eystri, en önnur skírskota til
alþýðutrúar og birta ímyndunarauðgi listamannsins. Á uppvaxtarárunum í Borgarfirði eystri
mótaðist ímyndunarafl Kjarvals snemma af örnefnum og sögum sem tengjast álfum og
huldufólki og samskiptum þeirra við mannfólk. Álfaborgin í Borgarfirði og álfaborgir af
huglægari toga birtast í mörgum verkanna á sýningunni og er ljóst að landslag og menning
Austurlands hefur átt drjúgan þátt í tilurð hins sérstæða myndheims Kjarvals.
Andlitsmyndir Kjarvals af alþýðufólki á Borgarfirði eystri, sem hann vann þar árið 1926,
skipa sérstakan sess í íslenskri listasögu og eru meðal gersema Listasafns Íslands.
Andlitsmyndirnar bera vott um afburðafærni í teikningu, sem og ríkt innsæi, næmni og alúð
gagnvart viðfangsefninu. Í verkum sem oft túlka veðurbarin andlit, mótuð af harðri
lífsbaráttu, kjarnast sambýli manns og náttúru á einstakan hátt. Íslenskt alþýðufólk hafði
ekki áður verið myndgert á þennan hátt og er skemmst frá því að segja að með þessum
myndum náði Kjarval að fanga hug og hjarta þjóðarinnar. Í byrjun árs 1928 það fyrsta verk
nýstofnaðs menntamálaráðs, sem sá um innkaup fyrir Listasafn ríkisins, að kaupa fimmtíu
andlitsmyndir eftir Kjarval. Safnið á nú alls 53 verk úr þessari myndröð og verður hluti þeirra
á sýningunni Kjarval á Austurlandi
Jóhannes S. Kjarval
Kjarval á Austurlandi 3.10.2026 — 14.2.2027
Sýningarstjóri: Anna Jóhannsdóttir
