top of page

Sigurð Guðjónsson : Hula

508A4884.JPG

fimmtudagur, 24. september 2026

Sigurð Guðjónsson : Hula

Listasafn Islands, Opnun föstudaginn 2. október kl 17:00 - 19:00

Hula (2012) er seiðmagnað myndbandsverk eftir Sigurð Guðjónsson, tekið í einni
samfelldri, sextíu mínútna langri töku. Verkið fangar í mynd og hljóði leik vindsins um svarta
sanda Skeiðarársands. Foksandurinn feykist burt, lag fyrir lag, frá kyrru auga
myndavélarinnar í átt að endalausri sjónarröndinni. Verkið er sýnt í samfelldri lykkju, án
greinilegs upphafs eða endis, og verður þannig að mynd af óstöðvandi framrás tímans.
Litdauf ásýnd landslagsins — er verkið í lit eða svarthvítu? — eykur enn á draumkenndan
blæ þess.

Í jarðfræði er talað um vindburð þegar sand- og rykagnir berast með vindi um yfirborð jarðar.
Enska heiti fyrirbærisins, aeolian transport, er dregið af nafni gríska guðsins Eólosar,
gæslumanns vindanna. Sandurinn sjálfur er jafnframt hlaðinn myndhverfri merkingu: í
tímaglasinu mælir hann framrás tímans, hann rennur milli fingra okkar og færist til undir
fótum okkar, og aldrei munum við ná að slá tölu á sandkornin á ströndinni.
Áhugi Sigurðar nær þó lengra en þessar ljóðrænu skírskotanir gefa til kynna; hann beinist
ekki síður að hinu áþreifanlega, skynrænni efniskennd yfirborðsflatanna og því hvernig
hreyfing setur mark sitt á þá.

Í verkinu Hula, rammar hann inn náttúruna sjálfa, og úr verður sterk mynd sem býður þeim
sem er reiðubúinn að gefa sér tíma og horfa af athygli að upplifa eitthvað sem er rétt
handan hins hversdagslega.
Safnið keypti verkið árið 2015 og sýnir það nú í fyrsta sinn í fullri stærð á stóru tjaldi.

Sigurður Guðjónsson
Hula 3.10.2026 — 3.1.2027
Sýningarstjóri: Pari Stave

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page