top of page

Seeking Solace: Hildur Elísa Jónsdóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 29. ágúst 2024

Seeking Solace: Hildur Elísa Jónsdóttir

Einkasýning Hildar Elísu Jónsdóttur, Seeking Solace, opnar í Y Gallery föstudaginn 30. ágúst klukkan 18:00. Sýningin stendur opin til og með 28. september næstkomandi.

Seeking Solace skyggnist inn í andstæða heima faglegs ytra byrðis atvinnulífsins og innri átök nútímafólks. Textarnir í Seeking Solace eru innblásnir af hispurslausum og einlægum myndböndum á TikTok, en þeir varpa ljósi á hina djúpstæðu tvískiptingu milli þess hversu frjálslega fólk tjáir sig á netinu og svo verndarhjúpsins sem það sveipar um sig í daglegu lífi sínu. Þegar örlítið truflaðar og ofurmannlegar játningarnar eru tvinnaðar saman við forneskjuleg en tignarleg þjóðlögin verður svikaraheilkennið í textunum enn meira áberandi. Á sama tíma og textarnir eru djúpmannlegir og óvægnir eru þjóðlögin traustvekjandi og huggandi - þverstæða sem margir tengja við úr eigin lífi í sambandi við innri orðræðu í andstæðu við ytri aðstæður.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page