Sara Björnsdóttir: Skíma / Glow

föstudagur, 30. janúar 2026
Sara Björnsdóttir: Skíma / Glow
Ásmundarsalur
17.01. - 15.02.2026.
Opið alla daga.
Virka daga frá 10:00 - 16:00
Á helgum frá 10:00 - 17:00.
Skíma -
Í myrkri verða útlínur hluta, landslags og fólks óljósari, kveikja hugmyndir og breyta
skynjun okkar á veruleikanum.
Það er margskonar myrkur sem tengist því að vera manneskja og ég bý við það stóran hluta
ársins. Það er umlykjandi, spennandi og heillandi heimur. Í gegnum tíðina hefur myrkrið
verið listafólki mikil andagift. Að geta horfið inn í myrkrið, látið það umlykja mig og orðið
ósýnileg er frelsandi.
“Myrkurljós” koma fram þegar sólin sest, ljósin slokkna og skuggar hverfa: stjörnur,
ljóstýrur í gluggum, skíma af ljósi sem fellur utan frá og inn og norðurljósin, allt það sem
ekki sést í birtu en verður sýnilegt í myrkri.
Í verkinu Skíma tók ég ljósmyndir af rýminu eftir lokun, með ljósin slökkt, í ljósaskiptunum
á meðan rökkrið varð að myrkri sem þéttist smám saman. Inn um gluggann barst skíma frá
götuljósum, ljósum frá bílum á ferð og tunglinu. Inni ríkti kyrrð, rýmið var mettað af
myrkri, en í skímunni birtust myndir og litir. Verkið lokkar, líkt og myrkrið sjálft.
Skíma / Glow -
In darkness, the outlines of objects, landscapes, and people become less distinct, sparking
ideas and altering our perception of reality.
There are many kinds of darkness connected to being human, and I live with it for much of
the year. It is an immersive, charged, and compelling world. Throughout time, darkness has
been a great source of inspiration for artists. To be able to disappear into the darkness, let it
surround me and become invisible, is liberating.
“Myrkurljós” “darklight” appear when the sun sets, the lights go out and the shadows
disappear: stars, faint lights in windows, a glow of light falling from outside to inside, and
the northern lights, all that is unseen in daylight but becomes visible in darkness.
In the work Skíma, I photographed the space after closing, with the lights turned off, in the
twilight, as dusk slowly deepened into darkness. A faint glow entered through the window
from streetlights, lights from passing cars, and the moon. Inside, there was stillness, the
space was saturated with darkness, while within the glow images and colors appeared. The
work lures, like darkness itself.


