top of page

Sara Björg Bjarnadóttir: Vind Auga / Wind Eye

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. apríl 2026

Sara Björg Bjarnadóttir: Vind Auga / Wind Eye

Kling & Bang
Marshallhúsið, Reykjavík

(english below)

Opnun laugardaginn 18. apríl kl. 17

Sýningartímabil 18.04 - 24.05.2026

Sara Björg sýnir innsetningu í Kling og Bang, Vind Auga, sem beislar atorku rýmisins og hleypir blæstrinum inn. Sýningin ferðast í gegnum op og glugga og fylgir þeim frumöflum sem fara þar í gegn, þar sem líkaminn er dreginn inn í rýmið og rýmið inn í líkamann. Það sem sést ekki tekur yfir, þrýstir, togar og mótar upplifunina í andardrætti, hreyfingu og skynjun.

Í listsköpun sinni vinnur Sara Björg með skúlptúra, innsetningar og gjörninga. Hún vinnur með rýmið sem upphafspunkt og í gegnum ferlismiðaða nálgun eiga sér stað efnislegar samræður, oft mótaðar af vistfræðilegum og sálfræðilegum hugmyndum. Hún kannar líkamlega upplifun rýmisins, svo sem byggingarfræðilegar aðstæður, og skoðar hvernig innri kerfi, hreyfing og skynjun móta reynslu.

Sara Björg lauk BA námi frá Listaháskóla Íslands árið 2015, stundaði meistaranám við sama skóla og var í skiptinámi við Royal Danish Academy. Hún hefur sýnt víða á Íslandi og erlendis, meðal annars í Listasafni Akureyrar, Ásmundarsal og Wild Horses Gallery í Kaupmannahöfn, auk sýninga í Þýskalandi, Litháen og Rúmeníu. Hún var tilnefnd til Hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2024 og er meðlimur í Laumulistasamsteypunni.

//

Opening Saturday, April 18th at 5pm

18.04 - 24.05.2026

In Wind Eye at Kling & Bang, Sara Björg works with air, light and sound as primary materials, shaping them into conditions that are not only seen but felt. The exhibition moves through a series of windows, engaging elemental forces that pass through them. The works then unfold through the dynamics of outward expansions and inward pulls, and these opposing forces create a shifting experience of expansion and contraction where the visitor's body is constantly adjusting.

Sara Björg Bjarnadóttir is an artist working with sculpture, installation and performative sculptures. Her practice is site-responsive and process-based, developing through an ongoing dialogue with space and material. Starting from physical encounters such as architectural conditions, she explores how internal systems, movement and sensory perception shape experience.

Sara Björg received a BA degree from the Iceland University of the Arts in 2015. She continued with MFA studies at the same institution, and participated in the exchange program at the Royal Danish Academy. She has exhibited in Iceland and internationally, including at the Akureyri Art Museum, Ásmundarsalur, and Wild Horses in Copenhagen, as well as exhibitions in Germany, Lithuania, and Romania. She was nominated for the Motivational Award at the Icelandic Art Prize in 2024 and is a member of Laumulistasamsteypan.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page