Samsýning : Undir

miðvikudagur, 30. september 2026
Samsýning : Undir
Hvalasafninu Húsavík, Opnun laugardaginn 3 október kl 17:00
Sýningin stendur fram á vormánuði 2027
Djúpt undir yfirborði Norður-Atlantshafsins ríkja öfgafullar aðstæður sem eru flestum mannverum óaðgengilegar og framandi. Er við köfum með hjálp tækninnar niður á þessi svæði sem eru í okkar huga fyrst og fremst vettvangur ímyndunaraflsins mætir okkur heill heimur náttúruafla og lífvera sem eiga þar sína eigin og afar raunverulegu tilveru þótt hún sé okkur enn að mörgu leyti ókunnug. Óvænt mætum við einnig okkur sjálfum á þessum framandi stað, í formi manngerðra hluta á borð við örplast, en ekki síður þurfum við að horfast í augu við gamalgróin viðhorf um samband manns og annarrar náttúru. Hvers eðlis er það samband og hver er ábyrgð okkar?.
Í nóvember 2025 héldu vísinda- og listamenn í rannsóknarleiðangur um jarðhitasvæði í Norður-Íshafi undir merkjum norræna verkefnisins Extremes. Þessi sýning birtir afrakstur listrænna hafrannsókna sem fram fóru í þeim leiðangri og þremur öðrum og tekst á við áleitnar spurningar sem vöknuðu: um merkingu framandi staða og aðstæðna er okkur virðast öfgafullar; um þau efnislegu og óefnislegu áhrif sem slíkir staðir hafa á okkur mennina; og einnig um meðvituð og ómeðvituð áhrif mannsins, líka á stöðum sem hann þekkir ekki og eru enn yfirleitt utan seilingar. Unnið er með myndskeið neðansjávarvélmennis af hafsbotni sem ekki hefur verið myndaður áður, sýni úr setlögum og sjó, leifar lífvera, fundna steina og rusl frá mannskepnunni – sem og hraun og hverahljóð af landi.
Listamenn: Þorgerður Ólafsdóttir, John Grzinich, Hekla Dögg Jónsdóttir, Gry Bagøien, Angela Snæfellsjökuls Rawlings
Sýningarstjórar: Auður Aðalsteinsdóttir, Michael Kjær
https://www.hvalasafn.is/undir-under/
