top of page

Samsýning MA nema Myndlistardeildar LHÍ á Hjalteyri : murmuration

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. september 2026

Samsýning MA nema Myndlistardeildar LHÍ á Hjalteyri : murmuration

Undanfarin tíu ár hafa nemendur á fyrsta ári við meistaranám Myndlistardeildar dvalið eina viku á Hjalteyri sem hluti af vinnustofu haustannar. Verkefnið er samvinnuverkefni Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Listaháskóla Íslands. Nemendur setja upp sýningu í Verksmiðjunni þar sem saga verksmiðjunnar og sérstaða staðarinns er efniviður og viðfangsefni verka þeirra.

Að þessu sinni dvelja níu nemendur LHÍ ásamt tveimur KUNO nemendum á Hjalteyri frá 13. – 20. september. Sigurður Guðjónsson, myndlistarmaður og prófessor við Listaháskóla Íslands, leiðir vinnustofuna ásamt Gústav Geir Bollasyni, myndlistarmanni og stofnanda Verksmiðjunnar.

Dvöl meistaranemanna lýkur með sýningunni ,,murmuration" sem opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri nk. laugardag 19. september milli kl. 16:00-18:00. Opið öllum.
https://www.lhi.is/vidburdur/murmuration/

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page