top of page

Samsýning Fókus - félags áhugaljósmyndara á Borgarbókasafninu Spönginni

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. mars 2023

Samsýning Fókus - félags áhugaljósmyndara á Borgarbókasafninu Spönginni

Félagsmenn í Fókus héldu út í náttúruna og leituðu uppi alls kyns mynstur sem í henni er að finna. Afraksturinn má skoða á samsýningu þeirra í Spönginni. Fókus – félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999 af hópi áhugaljósmyndara til þess að rækta áhugamálið, stunda jafningjafræðslu og njóta félagsskapar hvert annars, óháð aldri og fyrri störfum. Félagið hefur vaxið og telur nú tæplega 130 meðlimi. Það heldur reglulega viðburði, til dæmis kvöldrölt, fyrirlestra, vinnustöðvafundi, dagsferðir og lengri ferðir. Hápunktar félagsins eru útgáfa árbókar og hin árlega samsýning. Samsýning Fókus er nú haldin í Borgarbókasafninu í Spönginni og stendur sýningin frá 4. mars til 14. apríl 2023. Þema sýningarinnar er „Mynstur náttúrunnar“ og hefur mikill metnaður verið lagður í að tryggja gæði hennar, meðal annars með því að fá faglærðan sýningarstjóra, Díönu Júlíusdóttur, til liðs við sýnendur. Henni innan handar var finnski ljósmyndarinn Kasper Dalkarl, en bæði hafa þau útskrifast með meistarapróf í listum og menningu með áherslu á ljósmyndun frá Novia háskólanum í Finnlandi. Nú í ár taka 46 áhugaljósmyndarar þátt í sýningunni og eru mörg þeirra að sýna verk á sýningu í fyrsta sinn.

Sýninguna má skoða á opnunartíma safnsins, mán-fim kl. 10-18, fös kl. 11-18 og lau kl. 11-16.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page