SAMSÝNING : Í SKUGGA ÁTAKA

miðvikudagur, 23. september 2026
SAMSÝNING : Í SKUGGA ÁTAKA
Listasafninu á Akureyri Laugardaginn 26. september kl. 15
Salir 02 03a 04 05 12
Sýningin stendur yfir 26.09.2026 – 10.01.2026
Rússneska innrásin í Úkraínu 24. febrúar 2022 markaði upphaf mikilla áfalla fyrir Evrópu. Á þessari sýningu eru stríðsátök skoðuð með augum listamanna frá ólíkum löndum, þar sem listin verður vettvangur fyrir reynslu, minningar og tilfinningar sem mótast í skugga átaka.
Verkin draga fram sársauka, ótta og þrá eftir friði, en sýna einnig hvernig stríð getur bæði sundrað og sameinað. Úkraínskir listamenn miðla sögum af sársauka, von og seiglu, á meðan íslenskir listamenn endurspegla flestir aðra upplifun. Frönsk og dönsk verk kalla fram minningar sem geta jafnframt byggst á eldri hljóðbrotum, hollenskt verk tengir fortíð og nútíð og litháískur listamaður speglar líf við stöðuga ógn handan landamæra. Saman komin sýna verkin okkur hvernig list getur endurspeglað, unnið úr og mótmælt stríði.
Sýningin er áminning um brothættan frið og opnar rými fyrir samtal, samstöðu og samkennd, en einnig fyrir sameiginlega ábyrgð á sögu okkar allra.
Listamenn: Alyona Tokovenko, Angela Soop, Blary Armelle, Comfortable Universe, Klara Lilja, Open Group, Hallgrímur Helgason og Yvette van den Boogard.
Sýningarstjórar: Sigríður Örvarsdóttir og Daría Testo
