top of page

Samrými / Common Space / Fællesrum

508A4884.JPG

föstudagur, 21. ágúst 2026

Samrými / Common Space / Fællesrum

Verið velkomin á opnun: Fimmtudagur 27. ágúst: 16:30-18:30
Heimilisfang: Íslenska Sendiráðið, Strandgade 89, 1401 København, Denmark


SAMRÝMI / FÆLLESRUM / COMMON SPACE
Sýningin Samrými fjallar um hvernig við skilgreinum okkur sjálf í gegnum rými, landamæri og tengsl við aðra. Manneskjan leitast við að eiga sitt eigið svæði en sækir á sama tíma í að tilheyra stærra samfélagi. Samfélagið getur verið líkamlegt innan viss landsvæðis en einnig ósýnilegt, stafrænt rými sem við deilum í skýjunum. Einkarými er þannig orðið sífellt huglægara hugtak; þótt við leitumst við að eignast okkar eigin blett, viljum við hafa frelsið til að ferðast um sameiginleg og ósýnileg rými.
Í sendiráðinu fá þessar spurningar sérstaka merkingu þar sem þjóðir fá sinn eigin landskika til umráða innan annars lands þar sem að líkamlega og huglæga rýmið skarast.
Í verkaröðinni Interspace vinnur Þórdís Erla Zoëga með geometríska formgerð fána Norðurlandanna. Litir og hlutföll fánanna eru brotin niður og endursköpuð í gegnsæjum akrýlverkum með litbreytifilmu þar sem til verða svokölluð ómöguleg rými. Verkin mynda sjónblekkingu þar sem innra og ytra rými renna saman og raska hefðbundinni rýmisskynjun.
Verkin eru bæði speglandi og gegnsæ. Þau hanga í rýminu á fánareipum þar sem hvert verk tengist, styður hvert annað, skarast og myndar síbreytilega en sameiginlega heild. Líkt og menningarheimar og samfélög verða þau ekki skilin að án þess að heildin breytist.
Samhliða sýnir Þórdís innsetninguna Interface, sem fjallar um tengsl milli einstaklinga og mikilvægi samkenndar. Verkið býður tveimur gestum að deila sama sjónarhorni frá gagnstæðri staðsetninu og upplifa augnablik þar sem mörkin milli sjálfs og annars verða óljós.
///
Þórdís Erla Zoëga (f. 1988) er myndlistarmaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2012 og úr Vefþróun árið 2017. Hún hefur sýnt verk sín víða, meðal annars í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Helsinki, Amsterdam, Berlín og Basel, auk þess að taka þátt í sýningum í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og á Listahátíð í Reykjavík.
Verk Þórdísar kanna samspil ljóss, efnis og tækni og fjalla um stafræna nánd, póst-húmanisma og hvernig manngert umhverfi mótar skynjun okkar á tíma, rými og tengslum. Hún vinnur þvert á miðla, meðal annars með innsetningar, skúlptúra, málverk og myndbandsverk, þar sem efnistilraunir og sjónræn skynjun gegna lykilhlutverki.
Þórdís starfar með BERG Contemporary í Reykjavík og SPECTA í Kaupmannahöfn.
https://fb.me/e/8P8FNKhjy


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page