top of page

Samkeppni um ljóslistaverk - Vetrarhátíð 2024

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. nóvember 2023

Samkeppni um ljóslistaverk - Vetrarhátíð 2024

Reykjavíkurborg og Veitur standa fyrir samkeppni um ljóslistaverk í almannarými borgarinnar á Vetrarhátíð 2024. Hátíðin fer fram dagana 1. – 3. febrúar næstkomandi.

Vetrarhátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 2002 og hefur markmiðið með hátíðinni verið frá upphafi að lýsa upp skammdegið og bjóða íbúum og gestum borgarinnar að upplifa einstaka stemningu í borginni.

Markmið og áherslur
Markmið samkeppninnar er að virkja íslenskt hugvit og nýsköpun sem styður við skapandi og lifandi borg.

Opin keppni
Samkeppnin er opin öllum, myndlistar-, tónlistar og ljóstæknifólki, tölvunarfræðingum, ljósvistarhönnuðum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn, ljós og list í einhverju formi. Hægt er að koma með tillögu að staðsetningu eða fá ráðgjöf frá skipuleggjendum. Kostur er ef verkið er gagnvirkt og/eða innsetning í almannarými borgarinnar. Horft er til frumleika og má nota ýmis konar efni til verksins. Hafa skal í huga að hátíðin fer fram utandyra að vetri til og er mikilvægt að tillagan taki mið af því. Ekki er verið að leita að verki á Hallgrímskirkju.

Verðlaun
Tvö verk hljóta styrk að upphæð 1.000.000 krónur hvert. Upphæðin er hugsuð bæði til framkvæmdar verksins svo og þóknunar listafólks.

Áherslur dómnefndar
Dómnefnd leggur eftirfarandi áherslur í mati sínu:

styrkleiki heildarhugmyndar
listrænt gildi tillögu
áhrif tillögu á almannarýmið
praktísk hagnýting tillögu
Einnig verður horft til raunhæfni og kostnaðar við framkvæmd hugmyndar auk samsetningar teymis.

Tímarammi

27. nóvember 2023 // samkeppni kynnt og opnað fyrir umsóknir

20. desember 2023 // umsóknarfresti lokið.

21. desember - 4. janúar 2024 // vinna dómnefndar

5. janúar 2024 // niðurstaða kynnt

1 – 3. febrúar 2023 // Vetrarhátíð í Reykjavík

Skilaform og afhending

Tillögur skulu innihalda eftirfarandi:

• Myndefni og greinagerð sem sýna og útskýra heildarhugmynd verksins og listrænt gildi tillögu.

• Kostnaðaráætlun vegna framkvæmdar og þóknunar sigurvegara.

Tillögum skal skila á pdf-formi eða í rafrænni framsetningu í gegnum vefsíðuna WeTransfer á netfangið vetrarhatid@reykjavik.is fyrir miðnætti miðvikudaginn 20. desember 2023.

Tillögur skulu merktar með sex tölustafa auðkennisnúmeri sem þátttakendur velja sjálfir. Með tillögunni skal einnig senda skjal/nafnamiða með sama auðkennisnúmeri sem inniheldur uppplýsingar um þátttakendur ásamt nafni, netfangi og símanúmeri tengiliðar hópsins. Keppnisritari er sá eini sem sér þær upplýsingar. Tillögu er veitt viðtaka berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.

Þegar farið er inn á WeTransfer er hægt að velja Take me to Free eða Get WeTransfer Pro. Almennt er nóg að velja Take me to Free nema ef sendandi er með Pro aðgang.

1. Hlaðið niður skjölunum, ,,+ Add your files”.

2. Setjið inn netfang móttakanda: Email to samkeppni@honnunarmidstod.is

3. Setjið inn netfang sendanda: Your email xxx@xxx.xx

4. Ýtið á ,,Transfer”.

Fyrirspurnum verður svarað í vetrarhatid@reykjavik.is

Úrslit og verðlaun
Áætlað er að dómnefnd ljúki störfum 8. janúar 2024. Þegar dómnefnd hefur formlega lokið störfum verður nafnleynd rofin og þátttakendum tilkynnt um niðurstöður dómnefndar. Dómnefnd færir skrifleg rök fyrir niðurstöðu sinni.

Dómnefnd
• Markús Þór Andrésson Deildarstjóri sýninga og miðlunar Reykjavíkur

• Rebekka Guðmundsdóttir, borgarhönnuður og verkefnastjóri hjá Skipulags- og framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar,

• Sesselja Jónasardóttir, stofnandi seyðfirsku listahátíðarinnar List í ljósi,

Keppnisritari og trúnaðarmaður:

Guðmundur Birgir Halldórsson, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hafa samband við keppendur sem ekki hljóta verðlaun um mögulegt samstarf. Ef dómnefnd telur enga innsenda tillögu koma til greina til nánari útfærslu áskilur hún sér rétt til að hafna öllum tillögum. Niðurstaða dómnefndar er endanleg.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page