top of page

Samkeppni um útilistaverk - Vinningstillaga eftir Elísabetu Brynhildardóttur

508A4884.JPG

miðvikudagur, 28. maí 2025

Samkeppni um útilistaverk - Vinningstillaga eftir Elísabetu Brynhildardóttur

Í ársbyrjun 2025 var myndlistarmönnunum Elísabetu Brynhildardóttur, Matthíasi Rúnari Sigurðssyni og Þórdísi Erlu Zoega boðið að taka þátt í lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými við Borgartún 41. Reykjavíkurborg og lóðarhafar sameinast um listsköpun á svæðinu til að auka gæði og gott umhverfi í borginni. Listasafn Reykjavíkur hafði umsjón með samkeppninni sem fór fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM).

Niðurstaða dómnefndar liggur nú fyrir og hefur hún valið verk Elísabetar Brynhildardóttur sem vinningstillöguna. Í umsögn dómnefndar segir:

„Listaverk Elísabetar Brynhildardóttur, sem ber vinnuheitið Pollar, samanstendur af skúlptúrum úr ryðfríu stáli sem staðsettir verða við nýbygginguna við Borgartún 41. Verkið er vísun í hið náttúrulega fyrirbrigði vatnspolla og er form þess líkt og að slíkir pollar hafi verið reistir upp á rönd. Yfirborð verksins er pólerað sem spegill og virkjar endurkast sólar sem dregur upp síbreytilegar myndir í umhverfi verksins, í takt við árstíðir og sólargang. Framhlið hvers polls er mótuð sem gáraður vatnsflötur auk þess sem þar eru greyptar myndir sem vísa til sagna sem tengjast umhverfinu í Laugarnesi. Verkið leitast þannig við að tengja saman nýja og eldri byggð með myndrænum vísunum til sögunnar.
Verkið verður hluti af inngarði við Borgartún 41 sem er almenningsrými sem tengir saman hverfið og strandlengjuna og skapar verkið listrænt uppbrot á svæðinu, auk þess sem það er til þess fallið að vekja vegfarendur til umhugsunar um náttúru og mannlíf fyrr og nú.
Elísabet Brynhildardóttir hefur áður tengt saman teikningu og þrívíða eiginleika í verkum sínum og er verkið áhugaverð þróun á listferli hennar.“

Um listamanninn:
Elísabet Brynhildardóttir (f. 1983) vinnur í ýmsa miðla, einkum teikningar og skúlptúra. Í gegnum klassísk efni kannar hún tengsl okkar við listaverkið og listræna ferlið á meðan hún veltir fyrir sér hugmyndum um hverfulleika, tíma og efnisstigveldi. Hún er virkur meðlimur í Kling & Bang. Verk hennar hafa meðal annars verið sýnd í Galleríi i8, Listasafni Akureyrar, Kling & Bang, Myndlistarmiðstöð Skaftfells og Nýlistasafninu. Elísabet útskrifaðist með BA gráðu árið 2007 frá The University College for the Creative Arts, Bretlandi. Hún býr og starfar í Reykjavík.

Mynd: Rendering af vinningstillögunni gerð af Róberti Gíslasyni

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page