top of page

Samflæði - Erla Halldórsd & María Loftsdóttir

508A4884.JPG

fimmtudagur, 4. júlí 2024

Samflæði - Erla Halldórsd & María Loftsdóttir

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun á sýningunni SAMFLÆÐI.

Fimmtudaginn 4. júlí kl 16-18 opna þær Erla Halldórsdóttir og María Loftsdóttir myndlstasýningu í Gallerí Göngum, Háteigskirkju. Erla og María hafa báðar stundað myndlistina í mörg ár. Þær hafa lagt stund á nám í myndlistarskólum og sótt námskeið innanlands og erlendis. Báðar hafa þær sýnt á samsýningum og  María hefur haldið fjölda einkasýninga bæði innanlands og erlendis m.a í Japan.

Erla vinnur verk sín í dag að mestu leyti í akrýl og með blandaðri tækni. María vinnur bæði með olíu, akrýl og vatnslitum. Verkin á þessari sýningu eru unnin í akrýl, með blandaðri tækni og vatnslitum. Þær sækja innblástur í náttúruna og umhverfið, en hver með sínum augum,  tilfinningu, og litapallettu. Þetta er þeirra fyrsta samsýning

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page