top of page

sam(t)vinna - Opnun á samsýningu Textílfélagsins

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. mars 2023

sam(t)vinna - Opnun á samsýningu Textílfélagsins

Tuttugu og fjórir meðlimir Textílfélagsins sýna afrakstur samstarfs undanfarinna mánaða á veglegri sýningu sem ber heitið sam(t)vinna og opnar á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum næstkomandi laugardag, þann 1. apríl klukkan tvö.
Ferli var sett af stað þar sem þátttakendur voru paraðir saman og unnu þeir í kjölfarið að því að finna sameiginlegan flöt í listsköpun sinni. Afraksturinn er margvíslegur; aðferðir, efnistök og sjónarhorn hljóta hér ýmist endurnýjun eða endurskoðun, ný verk líta dagsins ljós og eldri verk birtast í nýju samhengi.
Sýningarstjórar eru myndlistarkonurnar Bethina Elverdam og Edda Mac.
Sýningin opnar klukkan tvö og stendur til fjögur eftirmiðdags og verða léttar veitingar í boði.
Frekari upplýsingar um þátttakendur og opnunartíma má finna á: https://tex.is/samtvinna/
Facebook viðburður https://fb.me/e/2Mh9wdTrl

Um Textílfélagið
Árið 1974 var Textílfélagið stofnað af nemendum og kennurum textíldeildar Myndlista- og handíðaskólans ásamt starfandi textíllistamönnum. Í félaginu eru menntaðir textíllistamenn og textílhönnuðir. Meginmarkmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna og kynna list þeirra og hönnun á innlendum og erlendum vettvangi.
Textílfélagið er eitt af aðildarfélögum Sambands íslenskra myndlistarmanna og hefur sinn fulltrúa í stjórn Textílmiðstöðvar Íslands á Blönduósi. Það er einnig eitt stofnfélaga Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs og hefur fulltrúa í stjórn NTA – Norrænu textíllista samtakanna ásamt því að vera aðili að Myndstefi og Baklandi Listaháskóla Íslands.
Á Korpúlfsstöðum hefur félagið rekið verkstæði frá árinu 2009. Þar geta félagsmenn nýtt sér aðstöðu til listsköpunar og framleiðslu á hönnunarvöru. Einnig býður félagið reglulega upp á námskeið tengd textílgerð ber þar helst að nefna jurtalitunar og útsaumsnámskeið, indigolitunar- og bókagerðanámskeið, bútasaumsnámskeið og pappírsgerð.
Í dag telur félagið 113 virka félagsmenn og þar af fjóra heiðursfélaga.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page