top of page

Sýningaropnun í Listasal Mosfellsbæjar: Giita Hammond og Lara Roje

508A4884.JPG

fimmtudagur, 8. febrúar 2024

Sýningaropnun í Listasal Mosfellsbæjar: Giita Hammond og Lara Roje

Giita Hammond og Lara Roje opna samsýninguna Við sjóinn í Listasal Mosfellsbæjar, laugardaginn 10. Febrúar milli kl. 14-16.

Þær eiga það sameiginlegt að heillast að því sem finnst við sjávarmálið og er það samnefnarinn í þeirra verkum. Verkin sýna samspil móður náttúru og manngerðra hluta við strendur Íslands þar sem margt er að finna, „Eins manns rusl er annars manns gull“.

Giita Hammond sýnir seríu af ljósmyndum sem tekin er á Vestfjörðum og heitir Hvíldarstaður. Verkin sýna ljósmyndir af gleymdum og ónothæfum vélum og munum sem liggja á víðsvegar um firðina. Eitt sinn nothæfir munir sem þjónuðu sínum tilgangi en hafa eignast nýjan tilgang. Í ljósmyndunum tengjast munirnir landslaginu, verða að óræðum skúlptúrum sem hvíla við fjörðinn, minnismerki um fortíðina.

Lara Roje notar hluti sem eitt sinn þjónuðu öðrum tilgangi, aðallega bein, rekavið og annað úr íslenskri fjöru ásamt því sem hún finnur á víðavangi eða nytjamörkuðum. Hlutirnir í verkum hennar hafa mótast og slípast til í hafinu, áður en þeim hefur skolað á land, sem hún svo sameinar í einstaka og jafnvel hagnýta hluti eins og lampa. Verkin kallast Nýtt líf: endurnýtt fegurð og vísa í nýjan tilgang.

Sýningin stendur til og með 8. mars. 2024

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page