Sýningaropnun: Wasteland í Norræna húsinu
fimmtudagur, 8. febrúar 2024
Sýningaropnun: Wasteland í Norræna húsinu
Hvernig getum við lágmarkað myndun úrgangs og umframefna á Íslandi og getum við nýtt þau verðmætu efni sem falla til hér á landi betur í staðbundnum verkefnum innan byggingariðnaðarins?
Dansk- íslenska nýsköpunar og arkítektastofan Lendager kannar þetta í gegnum sýninguna “Wasteland Ísland” þar sem settar verða fram hugmyndir og tillögur að lausnum á því hvernig við getum unnið með hráefni sem annars væru send til urðunar eða í orkufreka endurvinnslu með sjálfbærum hætti.
Athyglinni verður beint að stærstu efnisstraumunum, gleri, steypu, timbri, plasti og málmum. Kafað verður í rót vandans og leitað lausna við að nýta þessi efni með nýskapandi hætti hér á landi í byggingum framtíðarinnar. Verkefnin verða skoðuð í samhengi við íslenskar aðstæður, efnisstrauma og byggingarreglugerð og ljósi varpað á áskoranir sem kunna að vera þeim tengdum.
Á sýningunni verður margra ára rannsókna- og tilraunavinnu stofunnar miðlað þar sem viðteknum venjum hefur verið ögrað með það að markmiði að skapa samtal og leita lausna svo hægt sé að takast á við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á sviði umhverfismála.
Lendager er dönsk- íslensk nýsköpunar og arkítektastofa sem vinnur að því að færa byggingariðnaðinn í átt til aukinnar hringrásar og sjálfbærni.