top of page

SÝNINGARLOKUN UPPÁHELLING FYRIR SÆFARENDUR OG GESTI

508A4884.JPG

fimmtudagur, 10. ágúst 2023

SÝNINGARLOKUN UPPÁHELLING FYRIR SÆFARENDUR OG GESTI

Listasafn Ísafjarðar býður gesti velkomna á lokun sýningar Guðbjargar Lindar Jónsdóttur. Listamaðurinn verður á staðnum og býður upp á köku með kaffinu á fimmtudaginn 10. ágúst kl.16.00 í
sal Listasafns Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Eyrartúni.

Á sýningunni Uppáhelling fyrir sæfarendur eru gestir leiddir í ferðalag á vit veraldar þar sem skynja má
hið upphafna í einfaldleikanum sjálfum. Sýningin stendur til laugardags 12. Ágúst.

Guðbjörg Lind Jónsdóttir er fædd á Ísafirði 1961. Hún útskrifaðist frá Málaradeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1985. Þremur árum síðar útskrifaðist hún með kennsluréttindi frá sama skóla.
Guðbjörg á að baki margar einkasýningar auk þess að hafa tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Guðbjörg býr og starfar að list sinni í Reykjavík og á Þingeyri. Verk hennar eru í eigu
Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Ísafjarðar, Listasafns Háskóla Íslands auk
margra opinberra stofnana og einkasafna

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page