top of page

SÍM Hlöðuloft: Andleg tímavél - Tími og rúm

508A4884.JPG

mánudagur, 16. febrúar 2026

SÍM Hlöðuloft: Andleg tímavél - Tími og rúm

SÍM Hlöðuloft - Korpúlfsstaðir

Opnun: Laugardaginn 21. febrúar 14:00 - 17:00

Opið verður helgarnar; 21. - 22. febrúar og 27. feb. - 1. mars 14:00 - 17:00.

Hópurinn á samsýningunni Andleg tímavél - Tími og rúm samanstendur af myndlistarkonum sem voru saman í námi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1994-2000.

Á sýningunni er velt upp hugmyndum um einhvers konar afturhvarf, jafnvel söknuði eftir snertingu, samskiptum og þess að skapa með höndunum. Viðfangsefnin eru ólík en tengsl, samkennd og umbreyting eru orð sem koma upp þegar hugurinn flakkar til baka til þess tíma sem hópurinn átti saman í náminu.

Í verkunum eru skoðuð tengsl á milli manna, náttúru og valdakerfa, í nærumhverfi og víðara samhengi. Rýnt er í samskipti og tengslamyndanir, fjallað um samband manns og náttúru, drauma, náttúrufræði, áhrif og virkni lita, form, formhyggju, speglanir og dystópíska heima svo eitthvað sé nefnt. Hugmyndirnar eru unnar á ólíkan hátt og í mismunandi miðla.

Með því að tefla fram verkum þar sem efniskennd og handverk er mótandi afl verður til áhugavert samtal milli verkanna sjálfra og hins hráa rýmis Hlöðuloftsins.

Diana Storåsen
Eygló Jósephsdóttir
Fröydi Julianne Belle Lazlo
Hulda Vilhjálmsdóttir
Kristrún Eyjólfsdóttir
Kristín Elva Rögnvaldsdóttir
Marta María Jónsdóttir
Nikolina Mimi Sällborn
Þorgerður Jörundsdóttir

Sýningarstjóri: Anna Sóley Þorsteinsdóttir

///

Spiritual Time Machine – Time and Space

Opening Reception: Saturday, February 21, 2–5 PM

Open on Weekends: February 21–22 and February 27–March 1, 2–5 PM

The artists participating in the group exhibition Spiritual Time Machine – Time and Space are a group of visual artists who studied together at the Icelandic College of Arts and Crafts between 1994 and 2000.

The exhibition reflects on ideas of a kind of return — perhaps even a longing for contact, for communication, and for creating with one’s hands. While the subject matters vary, concepts such as connection, empathy, and transformation arise when looking back to the time the group shared during their studies.
The works explore relationships between people, nature, and systems of power, both in the immediate environment and in a broader context. They examine communication and the formation of connections, address the relationship between humans and nature, dreams, natural science, the influence and agency of color, form, formalism, reflections, and dystopian worlds, among other themes. The ideas are developed through diverse approaches and across different media.
By presenting works in which materiality and craftsmanship act as formative forces, an engaging dialogue emerges — both between the works themselves and with the raw space of Hlöðuloftið.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page