top of page

SÍM Gallery: Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?

508A4884.JPG

sunnudagur, 3. apríl 2022

SÍM Gallery: Sem bjargi væri létt af brjósti hennar?

Málverkasýning Óskar Gunnlaugsdóttur opnar í SÍM Gallerý Hafnarstræti 16 fimmtudaginn 7. apríl klukkan 17:00 - 20:00hr.

Viðfangsefni verkanna byggir á hugmyndum heimspeki og fagurfræði kenningar um hlutmiðaða verufræði (e. Object Oriented Ontology) sem gengur út á að allt sé hlutur og að ekki sé gerður mikill greinarmunur hugveru og hlutveru. Að munurinn á sköpuðum steini listamannsins, þeim sem ullu örlögum kvenna sem voru grýttar til dauða eða þeirra sem sagðir voru í maga Rauðsokka sé ekki sá að einhverjir séu skapaðir úr efni og aðrir ímyndaðir heldur að form þeirra sé mismunandi.

Sýningin er opin á opnunartíma skrifstofu SÍM á virkum dögum og um helgar frá 13.00 - 17.00. Sýningin stendur til 28. apríl, finnisage auglýst síðar.

Ósk Gunnlaugsdóttir (1979) lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og varði einni önn í silkiprenti við Académie Royale des Beaux-Arts í Brussel.
Ósk vinnur í ýmsa miðla en sækist jafnan í jarðtenginguna sem fæst í hinu hefðbundna málverki. Hún sækir innblástur í náttúruna og eru hugleikin áhrif manna og atburða af þeirra völdum á ásjón og upplifun fólks af landslaginu hvort sem er úti í náttúrunni eða í listaverkinu þar sem það er statt.

________________________________________________

Boulder of her chest?

Ósk Gunnlaugsdóttir painting exhibition at SÍM Gallerý Hafnarstræti 16, thursday 7. april 17 - 20hr.
Verkin á sýningunni takast á við þrívídd viðfangsefnis sem gæti verið tekið úr náttúrunni. Form skapað úr flötum, hornum og bogum sem eiga sér sinn stað í marglaga tilvistum huga og samfélags. Bjarg, klettur, steinvala og sandkorn í senn. Bjarg, farg, þungi og samfélagsleg pressa á að passa í form, fara ekki út fyrir línur skapaðar af mönnum.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page