top of page

SÍM Gallery: Opið kall fyrir 2023 - Open Call for 2023

508A4884.JPG

föstudagur, 18. nóvember 2022

SÍM Gallery: Opið kall fyrir 2023 - Open Call for 2023

SÍM hefur nú opnað fyrir umsóknir um sýningarsalinn í Hafnarstræti 16, SÍM Gallery.
Salnum verður úthlutað til 12 listamanna eða listahópa sem hver um sig fær þá salinn úthlutaðan 3 vikur í senn frá 1. hvers mánaðar. Tímabilið sem um ræðir er frá janúar til desember. ATH! Aðeins félagsmenn SÍM geta sótt um að sýna í salnum.

Í SÍM eru yfir 900 meðlimir, og gaman væri að sjá í salnum þverskurð af þeim fjölbreytta hópi sem félagið samanstendur af. Því viljum við hvetja unga sem aldna til að sækja um, og með sem fjölbreyttustum verkefnum, t.d. stendur ekkert í vegi fyrir því að listamenn taki sig saman og skipuleggi samsýningu.
Athugið þó að sýningar þurfa að vera þess eðlis að hægt sé að nýta salinn í fundarhöld og samkomur meðan á sýningum stendur (t.d. má ekki þekja gólfið þannig að ekki sé hægt að ganga um eða koma fyrir stólum).
Sjá má nánari upplýsingar um SÍM salinn hér: https://www.sim.is/s%C3%ADm-galleries

Félagsmenn eru hvattir til þess að senda inn umsókn um sýningarhald á sim@sim.is
Umsóknir þurfa að innihalda:
- CV/Portfolio listamanns/listamanna og að hámarki 1 bls um áætlaða sýningu.
- 3-5 myndir af verkum og ósk um sýningartíma.

Umsóknir berist í tölvupósti til: sim@sim.is, en frestur til að skila inn umsóknum rennur út í lok dags þann 9. desember 2022.

Sýningarnefnd mun fara yfir umsóknir og munu svör berast innan 10 daga eftir lok umsóknarfrests.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page