top of page

Stjórn SÍM auglýsir eftir aðila í úthlutunarnefnd starfslaunasjóð myndlistarmanna

508A4884.JPG

þriðjudagur, 12. maí 2026

Stjórn SÍM auglýsir eftir aðila í úthlutunarnefnd starfslaunasjóð myndlistarmanna

Stjórn Sambands Íslenskra Myndlistarmanna auglýsir eftir framboðum í úthlutunarnefnd starfslauna myndlistarmanna 2026.

Starf nefndarinnar felst í yfirferð og mati á umsóknum um starfslaun myndlistarmanna. Nefndarmenn fá greitt fyrir hverja umsókn sem tekin er til yfirferðar.

Umsækjendur mega ekki sjálfir sækja um starfslaun listamanna meðan þeir sitja í nefndinni og almennar reglur um vanhæfi gilda.

Starf úthlutunarnefndar fer fram í október og nóvember 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2026.

Umsókn skal fylgja:

Stutt kynning á starfsferli og reynslu
Reynsla af mats- eða nefndarstörfum (ef við á)
Stutt greinargerð um áhuga á setu í nefndinni

Áhugasamir umsækjendur sendi inn umsókn á umsokn@sim.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page