SÍM: Tilkynningar frá skrifstofu vegna kosninga og rafrænna skírteina

föstudagur, 6. maí 2022
SÍM: Tilkynningar frá skrifstofu vegna kosninga og rafrænna skírteina
Kosningar til stjórnar SÍM:
Kosningar til stjórnar SÍM eru á næsta leiti en þær hefjast kl 12:00 þann 11. maí nk. og standa til kl 12:00 þann 14. maí. Kosningar fara fram rafrænt og þurfa kjósendur að vera með rafræn skilríki eða Íslykil ( ath. ekki rafrænt félagsskírteini SÍM), til þess að geta kosið.
Velkomið er að leita til skrifstofu SÍM eftir aðstoð vegna kosninga. Símatími skrifstofu þessa kosningadaga verður frá 10-16.
_______________________________________________________________________________________________________
Rafræn félagsskírteini:
Af gefnu tilefni bendir SÍM á að hægt er að leita eftir aðstoð við uppsetningu rafræns félagsskírteinis á skrifstofu SÍM.
Einnig má finna leiðbeiningar með uppsetningu hér í pdf -
https://www.sim.is/_files/ugd/b4dc0c_4c89ea5a305e47068e35a9bd2e80b260.pdf