SÍM: Fundarboð - Aðalfundur Sambands íslenskra myndlistarmanna

föstudagur, 4. febrúar 2022
SÍM: Fundarboð - Aðalfundur Sambands íslenskra myndlistarmanna
FUNDARBOÐ
AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA MYNDLISTARMANNA
verður haldinn laugardaginn 14. maí 2022 á Korpúlfsstöðum
kl. 13:00 -16:00
Dagskrá aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar
3. Stjórnarkosning
4. Kosning eins fulltrúa í sambandsráð sbr. 9. gr.
5. Kosning félagslegs skoðunarmanns og endurskoðanda til eins árs
6. Lagabreytingar
7. Ákvörðun félagsgjalda
8. Önnur mál
Allar samþykktir á aðalfundi verða að hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkvæða.
Stjórnin skal kosin rafrænt og eru allir skuldlausir félagsmenn sambandsins kjörgengir.
Skrifleg tilkynning um framboð til stjórnarstarfa skal hafa borist skrifstofu SÍM eigi síðar en kl. 16:00, mánudaginn 28. febrúar 2022.
Eftirtaldir stjórnarmenn og formaður SÍM voru kjörnir til tveggja ára í maí 2020 og lýkur þeirra kjörtímabili á þessum aðalfundi.
Anna Eyjólfsdóttir, formaður, Hlynur Helgason og Freyja Eilíf, aðalmenn og Páll Haukur Björnsson, varamaður.
Anna Eyjólfsdóttir, formaður, Hlynur Helgason, varaformaður, Freyja Eilíf, aðalmaður hafa tilkynnt að þau gefi kost á sér til endurkjörs.
Eftirtaldir stjórnarmenn voru kjörnir til tveggja ára í maí 2021 og lýkur þeirra kjörtímabili 2023:
Hildur Elísa Jónsdóttir og Pétur Thomsen, aðalmenn og Elísabet Stefánsdóttir, varamaður.
Lagabreytingatillögur verða að berast skriflega til skrifstofu SÍM eigi síðar en kl 16:00, mánudaginn 28. febrúar 2022
Þann 4. mars verður sent út endanlegt fundarboð með lista yfir þá félagsmenn sem gefa kost á sér til stjórnarstarfa fyrir SÍM næsta kjörtímabil.
Bestu kveðjur
Ásgerður Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri