top of page

Sæt listaverk fæðast

508A4884.JPG

fimmtudagur, 9. mars 2023

Sæt listaverk fæðast

25. mars verður einstakur pop up viðburður í Listahúsi Borgarness þar sem alþjóðlegur hópur listamanna munu sameina krafta sína og skapa saman. Hópurinn samanstendur af bandaríska listmálaranum Michelle Bird, franska kökumeistaranum Aurore Pelier Cady og fjölskyldunni sem skapar Bonís heiminn þar sem svissneskt og íslenskt blóð flæðir saman. Tinna Royal sem var útnefnd listamaður Akranesbæjar 2020 mun einnig vera á svæðinu.

Á sýningunni verður gjörningur þar sem Michelle Bird og Bonís faðirinn (Sigurður Ó.L. Bragason) munu mála saman málverk undir innblæstri frá girnilegum kökum Sweet Aurora. Gestir munu þar sjá myndlist og gúmelaði blandast saman, þar sem listamennirnir byrja með tóman striga og leyfa innblæstrinum að flæða frá kökunum og yfir á strigann. Tinna verður einnig með gjörning þar sem hún skapar eitt af sínum dísætu skúlptúr listaverkum.

Sweet Aurora mun bjóða gestum upp á að smakka kræsingar sem þær framreiða í sæta- brauðsverslun í Bergstaðastræti 14 í Reykjavík. Meðal þess sem vinsælast er í kökuversluninni er sítrónu marengsterta og makkarónur. Með því frumlegra sem þær framreiða eru reyktar súkkulaði ganache "eldfjalla makkarónur." Kökubúðin er að öllu leyti frönsk og rekin af konum, þar sem köku meistararnir Aurora og Manon galdra fram kræsingar á hverjum degi. Við munum sjá hvað verður á boðstólum á sýningunni.

Auk myndlistagjörningsins verða til sýnis álprent af sykursæta heiminum Bonís. Þessi ævintýraheimur sem er skapaður af fjölskyldunni Miriam, Nicole, Felix og Sigurði er blanda af ljósmyndum, leirskúlptúr, teikningum og fundnum hlutum. Fjölskyldan notar einnig þrívíddar forrit til að búa til hlutina í myndunum. Þegar þær eru svo tilbúnar eru þær prentaðar á álplötur og hinar ýmsu vörur. Á veggjum gallerísins verður einnig kökuskúlptúrar að hætti Tinnu Royal. Hún gerir skúlptúrana úr úr frauði, álpappír, pappírsleir og sparsli sem hún málar svo með akrýlmálningu. Þó að verkin hennar séu einstaklega girnileg er bannað að borða skúlptúrana.

Sýningin snýst öll um samstarf; gestum og gangandi er því boðið að gera sýninguna enn sætari með nærveru sinni. Við mælum eindregið með því að kíkja á þennan sykursæta viðburð 25. mars í Listahúsinu í Borgarnesi.

Nánari upplýsingar hér: Https://www.arthouseborgarnes.com

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page