Roni Horn: Mother, Wonder

fimmtudagur, 22. maí 2025
Roni Horn: Mother, Wonder
Velkomin á opnun sýningarinnar Roni Horn: Mother, Wonder í dag, fimmtudaginn 22. maí frá 17 til 19 í i8 Gallery, Tryggvagötu 16. Á sýningunni, sem er sjötta einkasýning Roni í i8, eru ljósmyndaverk sem nú eru sýnd í fyrsta skipti. Ljósmyndirnar voru teknar við Landbrotshóla, nálægt Kirkjubæjarklaustri, sem einna helst eru þekktir fyrir bugðótta og mósagróna ásýnd.
Ljósmyndir af gervigígum svæðisins, sem myndast þegar hraun rennur yfir votlendi, eru paraðar saman til þess að fanga manngervingu landslagsins. Með því að para saman hóla skapar listamaðurinn rými fyrir áhorfandann til að íhuga það sem fyrir augum ber og beinir athygli að sérkennilegum og súrrealískum eiginleikum hólanna.
Ljósmyndirnar voru fyrst gefnar út í bókaformi árið 2023, hjá Steidl, í nýjustu útgáfu röð listaverkabóka eftir Roni sem bera titilinn To Place og hafa komið út frá árinu 1990. Myndirnar í Mother, Wonder voru teknar á árunum 2010 til 2012. Í dag samanstendur serían To Place af ellefu útgáfum sem allar kanna hvernig samband listamannsins við Ísland heldur áfram að þróast. Roni kom fyrst til Íslands árið 1975 og hefur samband hennar við landið haft augljós áhrif á listsköpun hennar sem og feril.