top of page

Reykjavíkurborg: Kjarvalsstofa í París - Opið fyrir umsóknir

508A4884.JPG

þriðjudagur, 15. febrúar 2022

Reykjavíkurborg: Kjarvalsstofa í París - Opið fyrir umsóknir

Kjarvalsstofa er stúdíóíbúð/vinnustofa í miðborg Parísar, sem listamenn geta sótt um að fá leigða. Stúdióið er 40 fm og er íbúðin hluti af alþjóðlegu listamannamiðstöðinni Cité Internationale des Arts. Íbúðin er staðsett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Kjarvalsstofa er í umsjá Reykjavíkurborgar og menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Opnað verður fyrir umsóknir um dvöl í Kjarvalsstofu þann 11. febrúar og er opið til og með 4. mars 2022 vegna tímabilsins 3. maí 2022 til 27. apríl 2023. Úthlutun er tveir mánuðir í senn.

Úthlutunartími ársins 2022 er á tímabilinu 3. maí 2022 til 27. apríl 2023 og leiguverð 1.166 evrur fyrir tveggja mánaða dvöl fyrir einstakling. Íbúðin er leigð út í tvo mánuði í senn. Önnur gjöld geta bæst við leiguna, til dæmis ef fleiri gestir dvelja í íbúðinni. Auk stúdíóíbúðarinnar er hægt að leigja aðgang að öðrum rýmum í listamannamiðstöðinni, til að mynda æfingarýmum með flygli eða píanói, aðstöðu til tónleikahalds, leirbrennsluofni o.fl. Sjá nánar í verðlista hér neðst á síðunni. Leiguverð gætur hækkað aðeins fyrir dvöl árið 2023. Tilvonandi íbúar greiða fyrirfram tryggingargjald sem jafngildir eins mánaðar leigugjaldi. Gjaldið er endurgreitt við brottför ef vinnustofan er yfirgefin í góðu ástandi.

Stjórn er ekki heimilt að úthluta íbúðinni í skemmri tíma. Sótt er um dvöl í Kjarvalsstofu rafrænt hér á vefnum. Með umsókn þurfa eingöngu að fylgja gögn sem umsækjandi telur að styðji umsóknina. Stjórn Kjarvalsstofu fer yfir umsóknirnar og tekur ákvörðun um hverjir hljóta úthlutun. Einnig eru valdir varamenn úr hópi umsækjenda. Stjórnin getur ákveðið að úthluta ekki öllum tímabilunum komi sérstakar aðstæður upp. Öllum umsækjendum er svarað um leið og úthlutun hefur verið ákveðin.

Ætlast er til að dvalargestir skili inn stuttri greinargerð að lokinni dvöl til stjórnar Kjarvalsstofu þar sem fram komi lýsing á unnu verkefni og afrakstri dvalarinnar.

https://reykjavik.is/kjarvalsstofa-i-paris

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page