Reykjavík 11.11 2026
Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna harmar og biðst afsökunar.

föstudagur, 27. nóvember 2026
Reykjavík 11.11 2026
Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna harmar og biðst afsökunar.
Reykjavík 11.11 2026
Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna harmar og biðst afsökunar á fordómafullum og særandi ummælum sem birtust í nafni FÍM í dagblöðum og í bréfaskriftum til opinberra aðila í garð listakonunnar Nínu Sæmundsson vegna verksins Hafmeyjunnar, sem sett var upp í Reykjavíkurtjörn árið 1959.
Hér er annars vegar átt við ályktun aðalfundar FÍM árið 1959, sem send var Bæjarráði Reykjavíkur, og hins vegar yfirlýsingu sýningarnefndar FÍM sem birtist í dagblöðum sama ár. Þar var vísað til höggmyndarinnar sem þeirrar „höggmyndar sem óprýðir tjörnina“ og einnig rætt um „hlut þann sem hefur verið komið fyrir í tjörninni“. Nínu Sæmundsson barst því miður aldrei afsökunarbeiðni vegna þessarar meiðandi orða í hennar garð. Þótt langt sé um liðið frá því að þessi ummæli féllu breytir það ekki því að þau lýsa fordómum og hroka gagnvart listakonunni og verkum hennar. Slík framkoma og orðræða samræmist á engan hátt þeim gildum sem Félag íslenskra myndlistarmanna stendur fyrir í dag.
Stjórn Félags íslenskra myndlistarmanna vill þakka Viktoríu Guðnadóttur og dr. Yndu Eldborg sýningarstýrum sýningarinnar Nína okkar kærasta Nína í Listasafni Reykjanesbæjar fyrir að vekja athygli á og skapa umræðu um listakonu sem mætti harkalegu mótlæti samtíðar sinnar. Við þökkum ykkur fyrir að gefa verkum Nínu Sæmundsson þann sess og þá athygli sem þau eiga sannarlega skilið.
Fyrir hönd stjórnar Félags íslenskra myndlistarmanna,
María Sjöfn
formaður FÍM
