top of page

Regína Magdalena: Handan tíma

508A4884.JPG

fimmtudagur, 23. apríl 2026

Regína Magdalena: Handan tíma

SÍM Gallery
Hafnarstræti 16, Reykjavík

25.04 - 12.05.2026

Á sýningunni leiðir Regina Magdalena áhorfandann
inn í marglaga veröld þar sem skil á milli hins áþreifanlega og
óáþreifanlega renna saman.

Verkin eru gerð með blandaðri tækni á árunum 2023-2026.
Teikningarnar eru á pappír, unnar með blýanti, olíu og blaðgulli en
olíumálverkin eru á striga og viðarplötu. Þetta samspil efna og
aðferða opnar glugga að sjónrænum tengslum sem bjóða upp á
íhugun um eðli tilverunnar og þær tengingar sem flæða á milli vídda.
Áhorfandanum er boðið að stíga inn í veröld þar sem tími og rúm
leysast upp.

Myndefnið eru konur og börn, þar sem persónurnar birtast á
mörkum hins veraldlega heims. Þar fangast augnablik handan tímans og um leið opnast rými fyrir
spurningar um það hvernig við skynjum okkur sjálf, umhverfi okkar
og hin viðkvæmu tengsl milli hins jarðneska og þeirra heima sem liggja
handan. Með myndlist og skynjun sinni kannar listakonan þessi skil og bíður
áhorfandanum í ferðalag.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page