top of page

Rannsóknarstaða við Listasafn Reykjavíkur laus til umsóknar

508A4884.JPG

fimmtudagur, 26. október 2023

Rannsóknarstaða við Listasafn Reykjavíkur laus til umsóknar

Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausa til umsóknar rannsóknarstöðu fyrir árið 2024.

Hlutur kvenna í íslenskri listasögu.

Listasafn Reykjavíkur auglýsir lausa til umsóknar tímabundna rannsóknarstöðu fyrir árið 2024 sem fjalla skal um hlut kvenna í íslenskri listasögu. Með rannsókninni gefst tækifæri til að skoða hlut einstaka kvenna í sögulegu samhengi en einnig hópa eða kvenna innan listhópa eða liststefna jafnframt því sem tækifæri er til að rannsaka sýn listakvenna á afmörkuð viðfangsefni – eða listfræðileg álitamál.

Staðan er ætluð fræðafólki á sviði íslenskrar myndlistar og menningarsögu sem fellur undir starfssvið safnsins. Um er að ræða hálfa stöðu til eins árs sem vinna má eftir samkomulagi, en rannsókninni skal ljúka með útgáfu og sýningu og í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum í upphafi árs 2025. Stefnt er að því að niðurstöður rannsókna verði birtar á fræðilegum vettvangi en auk þess skulu þær kynntar með fyrirlestri og miðlun til almennings á meðan á sýningu stendur. Starfsaðstaða er í Listasafni Reykjavíkur og skulu rannsóknargögn og niðurstöður varðveitt þar.

Rannsóknarstaða Listasafns Reykjavíkur hlaut árið 2021 öndvegisstyrk Safnaráðs til þriggja ára og er unnin í samstarfi við námsbraut í listfræðum við Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að rannsaka hlut kvenna í íslenskri listasögu og efla Listasafn Reykjavíkur sem vettvang rannsókna. Auglýst hefur verið eftir rannsakendum árlega þau þrjú ár sem styrknum verður úthlutað. Þetta er því í þriðja og síðasta sinn sem rannsóknarstaðan er auglýst.

Fyrst hlaut Sigrún Inga Hrólfsdóttir stöðuna árið 2022 til að vinna að rannsókn á ævistarfi Hildar Hákonardóttur sem lauk með útgáfu bókar um Hildi og yfirlitssýningu á Kjarvalsstöðum í janúar 2023. Önnur til að hljóta stöðuna var Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir sem nú rannsakar feril og list Borghildar Óskarsdóttur og er væntanleg bók um listakonuna auk þess sem opnuð verður yfirlitssýning á verkum hennar á Kjarvalsstöðum í mars 2024.

Umsækjendur, skili inn umsókn, þar sem verkefnið er skilgreint og gerð grein fyrir því hvernig rannsóknin sé líkleg til að varpa nýju ljósi á hlut kvenna í íslenskri myndlistarsögu.

Umsókninni skal fylgja greinargerð um menntun og reynslu af fræðistörfum, útgáfu og/eða gerð myndlistarsýninga. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið meistaranámi eða sambærilegri gráðu

Umsókn sendist Listasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík, eða á netfangið listasafn@reykjavik.is, merkt Rannsóknarstaða. Skilafrestur er 1. desember 2023. Nánari upplýsingar veitir safnstjóri Ólöf Kristín Sigurðardóttir í tölvupósti olof.kristin.sigurdardottir@reykjavik.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page