top of page

Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson: Tilfinninga Steinar/Stones of Emotions

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. mars 2026

Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson: Tilfinninga Steinar/Stones of Emotions

Höggmyndagarðurinn
Myndhöggvarafélagið, Nýlendugata 17a.

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Tilfinninga Steinar eftir Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnason í Höggmyndagarðinum þann 14. mars kl 14:00.

Sýningartímabil: 14.03 - 24.05. 2026

Í tilfinningalega aftengdum heimi þar sem við hlustum ekki á eigið innsæi er auðvelt að horfa í hina áttina, mistúlka og vantreysta. Tilfinningagreind er sálfræðilegt hugtak sem kom upp á tíunda áratug síðustu aldar og er það mælikvarði hvernig við metum tilfinningar okkar. Tilfinningagreind þýðir ekki meiri tilfinningasemi heldur vitneskju um tilfinningalega líðan, læra að skilja/skynja þessar tilfinningar sem við berum
og vita hvað hefur áhrif á tilfinningalega næmni okkar. Til að bæta tilfinningagreind okkar er áhrifaríkt að skoða hvar þinn tilfinningalegi styrkleiki liggur, þjálfa upp tilfinningalegan orðaforða, æfa sjálfsvitund með tilfinningalegu stöðutékki, gefa sér
rými og slaka á, hlusta með samkennd, lesa í andrúmsloft og stemmningu.

Innsetningin er perónulegur leiðarvísir í tilfinningarferðalagi með tilgangnum að komast nær eigin tilfinningalegri sjálfsvitund og öðlast dýpri samkennd. Mælt er með því að ganga auðmjúk inn í tilfinningaferðalagið og berskjalda sig og eigin tilfinnignar fyrir því sem vera vill.

Sýningin er upplifun sem opnar rými fyrir tilfinningar í formi, lit og hreyfingu. Skúlptúrarnir eru ekki aðeins hlutir í rými heldur stöðvar í tilfinningaferðalagi, þar sem hver lögun og hver litur endurómar innra ástand. Með því að færa sig á milli verka og taka þátt í hreyfi-upplifun verkanna, verður áhorfandinn meðvitaðri um eigin tilfinningaviðbrögð og líkamsvitund.


Skúlptúrarnir skapa rými fyrir speglun, þar sem persónuleg reynsla mótar merkingu verksins. Sýningin staðsetur listina á mörkum fagurfræði og sálfræði og sýnir hvernig form, litur og hreyfing geta orðið verkfæri til aukinnar tilfinningagreindar og dýpri sjálfsskilnings.

///

In an emotionally disconnected world where we do not listen to our own intuition, it is easy to look the other way, misinterpret, and mistrust.

Emotional intelligence is a psychological concept that emerged in the 1990s and serves as a measure of how we assess our emotions. Emotional intelligence does not mean being more emotional, but rather having awareness of our emotional state, learning to understand and perceive the emotions we carry, and recognizing what influences our emotional sensitivity.

To improve our emotional intelligence, it is effective to examine where your emotional strength lies, develop a richer emotional vocabulary, practice self-awareness through emotional check-ins, allow yourself space to relax, listen with empathy, and read the atmosphere and mood around you.

The exhibition is a personal guide through an emotional journey with the aim of bringing us closer to our own emotional self-awareness and gaining deeper empathy. Visitors are encouraged to enter the emotional journey with humility and to open themselves and their emotions to whatever may emerge.

The exhibition is an experience that opens space for emotions through form, color, and movement. The sculptures are not merely objects in space but stations along an emotional journey, where each shape and each color resonates with an inner state. By moving between the works and engaging with their movement-based experience, the viewer becomes more aware of their own emotional responses and bodily awareness. The sculptures create space for reflection, where personal experience shapes the meaning of the work. The exhibition places art at the intersection of aesthetics and psychology, demonstrating how form, color, and movement can become tools for increased emotional intelligence and deeper self-understanding.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page