Ragnheiður Ragnarsdóttir : Ú T Ú R D Ú R / innsetning í rými

föstudagur, 18. september 2026
Ragnheiður Ragnarsdóttir : Ú T Ú R D Ú R / innsetning í rými
Sýningin Ú T Ú R D Ú R í Kirsuberjatrénu samanstendur af ljósmyndum frá fjarlægum slóðum og litaflötum. Nafnið tengist bæði rýminu, sem er óhefðbundið sýningarpláss í bakherbergi verslunarinnar og efnistökum. RR hefur á undanförnum árum lagt stund á málverkið, en snýr sér hér í hina áttina, sem etv. tengist meir fyrra ferli hennar.
Hún sótti framhaldsmenntun sína til þriggja landa, Frakklands, Danmerkur og Íslands. Samtals um 14 ár.
Hún á að baki töluverðan feril í myndlist og stöku verk í arkitektúr. Má þar t.a.m. nefna hönnun viðbygginga við Safnasafnið á Svalbarðseyri.
Lengst af starfaði hún við arkitektur en einnig utanumhald um gamla Nýlistasafnið við Vatnsstíg í tæpan áratug. Eftir það var ekki aftur snúið og myndlistin sótti á og hefur hún verið hennar aðal verksvið frá 2016.
Hún á að baki þátttöku í fjölda samsýninga, hér og erlendis, en líka nokkrar einkasýningar, hérlendis. Tvívegis hefur hún dvalið í vinnustofum í París og Róm.
Kirsuberjatréð / Vesturgötu 4 Reykjavík
OPNUN: 12.9. 2026 KL14 – 17 / OPIÐ: virka dag frá 10-18 og 10-17 um helgar.
