top of page

Ragnheiður Gestsdóttir: Ef allt annað bregst

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. nóvember 2026

Ragnheiður Gestsdóttir: Ef allt annað bregst

Gallerí úthverfa, Ísafirði Opnun laugardaginn 7. nóvember kl 16:00
Sýningin stendur yfir 07.11 - 29.11 2026
Listakonan verður á staðnum og boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.

Ef allt annað bregst

forsendur sem engin gefur sér eða fyllilega skilur
fyrr en eftir á
fyrirstaðan ávöl og lokkandi

seyðingur
eins og stöðug tannpína
fætur eins og smjör
rótfylltar
plasthúðuð mýkt
eins og allt annað

faðmur sem aldrei lokast

Ragnheiður Gestsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1975. Hún vinnur í ólíka miðla; skúlptúr, innsetningar, kvikmyndir og ljósmyndir. Í verkum sínum vísar hún í tilbúin tákn og sviðsetningu menningarinnar, lagskiptingu, aðgang og vald. Auk myndlistarinnar hefur hún leikstýrt og unnið að fjölda tilraunakenndra heimildamynda.

Verk Ragnheiðar hafa verið sýnd í Listasafni Reykjavíkur, Ásmundarsafni, Gerðarsafni, Nýlistasafninu, Göteborgs Konsthall og Cecilia Hillström Gallery í Svíþjóð, Southeastern Center for Contemporary Art og Soloway Gallery í Bandaríkjunum, svo eitthvað sé nefnt. Verk hennar má finna í safneignum helstu safna hér á landi.

If all else fails


premises no one assumes or fully understands

until afterwards
the obstacle, rounded and alluring
a lingering ache

like a constant toothache
legs like butter
root-canaled
plastic-coated softness
like everything else
an embrace that never closes

Ragnheiður Gestsdóttir was born in Reykjavík in 1975. Working across a range of media, including sculpture, installation, film and photography, her practice explores constructed symbols and cultural staging, layering, access and power.

Alongside her visual art practice, she has directed and worked on numerous experimental documentary films.

Her work has been exhibited at Reykjavík Art Museum, Ásmundarsafn, Gerðarsafn, The Living Art Museum (Nýlistasafnið), Göteborgs Konsthall and Cecilia Hillström Gallery in Sweden, as well as the Southeastern Center for Contemporary Art and Soloway Gallery in the United States, among others. Her work is held in the collections of several of Iceland's leading art museums.
www.ragnheidurgestsdottir.net

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page