top of page

RAFALL: Útskriftasýning LHÍ 2023

508A4884.JPG

fimmtudagur, 11. maí 2023

RAFALL: Útskriftasýning LHÍ 2023

Útskriftarsýning BA nemenda í myndlist, hönnun og arkitektúrverður opnuð fimmtudaginn 18. maí kl.14.00 í Hafnarhúsi

Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnunardeild og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.

Á sýningunni getur að líta lokaverkefni 74 nemenda í myndlist, grafískri hönnun, arkitektúr, fatahönnun og vöruhönnun. Verkin á sýningunni endurspegla áherslur, nám, rannsóknir og listsköpun nemenda síðastliðin þrjú ár.

Sýningastjórar eru Arnar Ásgeirsson (myndlist), Rúna Thors (vöruhönnun), Þórunn María Jónsdóttir (fatahönnun), Adam Flint (grafísk hönnun), Dagur Eggertsson og Hjördís Sóley Sigurðardóttir (arkitektúr).

Sýningin stendur til mánudags 29. maí og er aðgangur ókeypis á meðan sýningunni stendur.

Öll velkomin.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page