top of page

Rúllandi snjóbolti 19

508A4884.JPG

miðvikudagur, 24. júní 2026

Rúllandi snjóbolti 19

Rúllandi snjóbolti 19 opnar í ARS LONGA á Djúpavogi

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Rúllandi snjóbolti 19 laugardaginn 27. júní kl. 15:00 í ARS LONGA, Djúpavogi.
Sýningin verður opnuð með formlegum hætti af Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og He Rulong, sendiherra Alþýðulýðveldisins Kína á Íslandi. Sýningin stendur yfir frá 27. júní til 2. ágúst 2026.

Rúllandi snjóbolti 19 er alþjóðleg samtímalistasýning og samstarfsverkefni ARS LONGA samtímalistasafns og Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðvarinnar (CEAC) í Xiamen í Kína. Þetta er í tíunda sinn sem Rúllandi snjóbolti er haldin hér á landi og sá þriðji í húsakynnum Ars Longa, sem listamennirnir Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon stofnuðu árið 2021. Markmið Ars Longa samtímalistasafns er að vera lifandi vettvangur alþjóðlegrar listar og efla tengsl milli íslenskra og erlendra listamanna.

Í ár taka 19 listamenn þátt í sýningunni, þeir eru: Aðalsteinn Þórsson, Andri Björgvinsson, Arna Guðný Valsdóttir, Donglai Meng, Fangzhou Wu, Guda Koster & Frans van Tartwijk, Hanna Dís Whitehead, Hulya Yilmaz, Jin Jing, Jun Zhang, Kjartan Ari Pétursson, Kristinn E. Hrafnsson, Kristján Guðmundsson, Linus Lohmann, Meiya Lin, Rein Kooyman, Yuxuan Cui og Þórir Freyr Höskuldsson.
Sýningarstjórn: Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir, Hildur Rut Halblaub, Ineke Guðmundsson og May Lee.

Sýningin í ár er sérstaklega helguð minningu listamannsins og vinar okkar Kristjáns Guðmundssonar (1941-2025), sem átti sterka og sérstaka tengingu við Rúllandi snjóbolta og ARS LONGA.
Verkefnið er unnið með dýrmætum stuðningi Múlaþings, Myndlistarsjóðs og Uppbyggingarsjóðs Austurlands.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page