Petra Hjartardóttir: Garðurinn minn / My Garden

fimmtudagur, 23. apríl 2026
Petra Hjartardóttir: Garðurinn minn / My Garden
Verið velkomin á opnun einkasýningar Petru Hjartardóttur, Garðurinn minn, laugardaginn 25. apríl frá 17-19, í Á milli (Ingólfsstræti 6).
Sýningin stendur til 4. maí og er opin alla daga frá 12-18.
Hvað segir garðurinn þinn um þig? Seinasta sumar leigði ég grænmetisgarð skammt frá heimili mínu. Í fyrstu gekk allt vel. Ég vann hörðum höndum að því að plægja garðinn, bera á, vökva, gróðursetja og reyta arfa (sem óx hraðar og meira en nokkuð annað). Garðurinn dafnaði vel. Vegna anna þá komst ég ekki til að vitja garðsins um nokkurt skeið. Þegar ég kom að honum höfðu arfi og þurrkur leikið hann grátt. Netlur höfðu tekið hann yfir og gulrótagrösin voru fölnum. Ég fann fyrir uppgjöf, skömm. Þetta verkefni sem átti að færa mér gleði og tilgang hafði opinberað mig og mína lesti. En kannski var mér alltaf að fara mistakast? Það eru alltaf nokkur arfagrey í felum undir rósarunnunum í hallargarðinum.
Petra Hjartardóttir (f.1992) útskrifaðist með MFA gráðu frá skúlptúrdeild Yale School of Art árið 2019, BFA gráðu í myndlist frá Hunter College í New York árið 2016 og úr fornámi Myndlistarskólans í Reykjavík árið 2012. Hún hefur sýnt á samsýningum í Bandaríkjunun, á Ítalíu; og í Kling og Bang, Listasafni Reykjavíkur, Kannski og Þulu á Íslandi. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu í Harbinger árið 2021. Hún hefur sótt gestavinnustofur hjá Fondazione Antonio Ratti á Ítalíu, hjá AiR Sandnes í Noregi og í Kjarvalsstofu í París. Petra hefur hlotið margar viðurkenningar og styrki í námi sínu og starfi sem myndlistarmaður, þ.á.m. úthlutun úr Myndlistarsjóði, dvalarsjóði Muggs og ferðasjóði Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Árið 2025 hélt hún dúó sýninguna Fornar slóðir í SÍM Gallery, ásam Karen Pálsdóttur, og tók þátt í samsýningum í Þulu á Hafnartorgi og í Ásmundarsal. Seinasta haust sýningarstýrði hún sinni fyrstu sýningu, Algjörar skvísur í Hafnarborg, ásamt Jasa Baka.
/
We welcome you to the opening of Petra Hjartardóttir’s solo exhibition, My Garden, on Saturday, 25. April, 5-7pm, at Á milli (Ingólfsstræti 6).
The exhibition is open daily through May 4th, 12-6pm.
What does your garden say about you? Last summer, I rented a vegetable garden not far from my home. At first, everything went well. I worked hard to plow the garden, apply fertilizer, water the garden, plant vegetables, and pick the weeds (which grew faster and more than anything else). The garden flourished. Because of other distractions, I didn’t get to visit the garden for a while. When I returned, it had been brutalized by weeds and drought. Nettles had taken over and the carrot greens were wilted. I felt a sense of resignation, of shame. This project, that was supposed to bring me joy and purpose, had exposed me and my vices. But maybe I was always going to fail? There are always a few weeds hiding under the rose bushes in the palatial garden.
Petra Hjartardóttir (b.1992) graduated with an MFA degree in Sculpture from Yale School of Art in 2019 and a BFA degree in Studio Arts from Hunter College in New York in 2016. She has exhibited in group exhibitions in the United States, in Italy; and at Kling and Bang, Reykjavík Art Museum, Kannski and Þula in Iceland. She held her first solo exhibition at Harbinger Project Space in 2021. She has attended artist residencies at Fondazione Antonio Ratti in Italy, at AiR Sandnes in Norway, and at Cité internationale des arts in Paris. Petra has received many awards and grants in her studies and practice as an artist, including grants from the Icelandic Visual Arts Fund, the Muggur residency fund, and the Icelandic Art Center’s travel fund. In 2025 she held the duo exhibition Ancient Paths at SÍM Gallery, with Karen Pálsdóttir, and participated in group exhibitions at Þula Hafnartorg and in Ásmundarsalur. Last autumn, she curated her first exhibition, Total Babes at Hafnarborg Art Museum, with Jasa Baka.
