top of page

Pétur Thomsen: Landnám / Settlement

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. nóvember 2024

Pétur Thomsen: Landnám / Settlement

Sýningaropnun laugardaginn 9. nóvember kl. 14 í Hafnarborg.

Athafnir mannkyns undanfarnar aldir hafa breytt heiminum svo mjög að talað er um nýtt jarðsögulegt tímabil: mannöldina (e. Anthropocene). Fólksfjölgun, tilkoma ofurborga, gríðarlegur bruni jarðefnaeldsneytis og rask á lífríki eru meðal þeirra þátta sem hafa leitt til mælanlegra loftslagsbreytinga og hlýnunar jarðar. Vegna þessara varanlegu áhrifa mannsins á lífhvolfið, jarðskorpuna, lofthjúpinn og höfin benda rannsóknir til þess að við séum kominn inn í tímabil sjötta aldauða lífríkis á jörðinni (það fimmta var þegar risaeðlurnar dóu út fyrir meira en 65 milljónum ára). Þá er þetta í fyrsta sinn í sögunni sem við stöndum frammi fyrir slíku aldauðaskeiði af mannavöldum.

Landnám er ljósmyndaröð sem Pétur Thomsen hefur unnið að í nokkur ár en serían hefur ekki verið sýnd í heild áður. Þar er sjónum beint að landsvæðum sem hefur verið raskað og breytt með einum eða öðrum hætti, til að mynda með landnýtingu, námavinnslu, skógrækt, jarðrækt og vegagerð. Ljósmyndirnar eru teknar að næturlægi en ljósmyndarinn lýsir landið upp með flassi til að afmarka sviðið. Við það fá myndirnar á sig vissan eftir-heimsendablæ, þar sem svartur himininn gefur til kynna yfirvofandi vá.

Mannöldin og hið yfirstandandi sjötta aldauðaskeið eru viðfangsefni einkasýningar Péturs Thomsen, Landnáms, í Hafnarborg. Þar verða sýnd ný ljósmyndaverk þar sem hinn rannsakandi eiginleiki ljósmyndamiðilsins er nýttur til að fjalla um áhrif mannsins á jörðina – hvernig maðurinn notar og nýtir land – sem og þau ummerki sem framkvæmdir mannsins skilja eftir sig í náttúrunni.

Pétur Thomsen (f. 1973) lauk MFA-prófi í ljósmyndun frá École nationale supérieure de la photographie í Arles, Frakklandi, árið 2004. Áður stundaði hann nám í frönsku, listasögu og fornleifafræði við Université Paul Valéry í Montpellier og listljósmyndun við École supérieure des métiers artistiques í sömu borg. Pétur hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar en árið 2004 hlaut hann til að mynda verðlaun LVMH-samsteypunnar sem þá voru veitt ungum listamanni í 10. sinn. Hann var svo útnefndur af Musée de L’Élysée í Lausanne sem einn af 50 ljósmyndurum sem líklegir væru til að setja mark sitt á ljósmyndasögu framtíðarinnar í verkefninu reGeneration: 50 Photographers of Tomorrow. Pétur býr og starfar í Sólheimum í Grímsnesi.


English

Human activities over the past centuries has had such an impact on the Earth that it constitutes its own geological epoch: the Anthropocene. Population growth, the rise of megacities, the burning of fossil fuels and ecosystem collapse are some of the factors that contribute quantitatively to climate change and global warming. As a result of mankind’s disturbance of the biosphere, the Earth’s crust, the atmosphere and the oceans, research findings indicate that we have pushed the planet into its sixth mass extinction (the fifth extinction event happened over 65 million years ago, when the dinosaurs became extinct). This means that for the first time in history such an extinction event is caused by humans.

Settlement is a photo series that Pétur Thomsen has been working on for a few years, but it has only been exhibited in part until now. The photographer directs the lens at pieces of land that have been disturbed or transformed in one way or another, for example through land use, mining, forestry, agriculture or the construction of roads and infrastructure. The photographs are taken at night and so the photographer uses a big flash to light up the land and define the stage. This imbues the photographs with an ominous tone, a post-apocalyptic feel, as the dark night sky suggests the looming threat.

The Anthropocene and the sixth mass extinction are the subject of Pétur Thomsen’s exhibition, Settlement, at Hafnarborg, presenting new photographic works where he utilises the probing aspect of the medium of photography in order to inquire into humanity’s global impact – how we make use of and exploit the earth – as well as looking at traces of human interventions in nature.

Pétur Thomsen (b. 1973) completed his MFA degree from the École nationale supérieur de la photographie (ENSP) in Arles, France, in 2004. Prior to that, he studied French, art history and archaeology at The Université Paul Valéry in Montpellier and art photography at École supérieure des métiers artistiques, also in Montpellier. Pétur has been nominated for and received numerous awards and prizes, such as the 10th LVMH Young Artists’ Award, handed out in 2004. He was also selected by the Musée de L’Élysée in Lausanne for the project regeneration: 50 Photographers of Tomorrow. Pétur lives and works in Grímsnes, South Iceland.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page