top of page

Opnunarviðburður: Leifar — Gjörningasería í Nýlistasafninu

508A4884.JPG

fimmtudagur, 22. júní 2023

Opnunarviðburður: Leifar — Gjörningasería í Nýlistasafninu

Verið velkomin á opnun gjörningaseríunnar Leifar, laugardaginn 24. Júní kl. 17—19 í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu. Þá flytur Kamile Pikelyte (LT/IS) gjörninginn Passengers sem jafnframt verður sá fyrsti í röð sex gjörninga sem fara fram yfir sumartímann.

Þau áþreifanlegu efni og hlutir sem falla til við gjörningana verða eftir í sýningarsalnum og munu þjóna sem efniviður fyrir þá listamenn sem á eftir koma. Verkin verða skrásett með ýmsum hætti: hljóðupptöku, í gegnum skapandi skrif og fangaðir á vídeó eða myndir. Loks verður efnið skrásett og varðveitt í Gjörningaarkífi Nýló, en arkífið verður aðgengilegt í sýningarsalnum yfir sumartímann. Viðburðaröðin vísar í ýmsar áttir, í félags-pólitíska menningarsköpun, varðveislu heimilda, helgisiði og leikreglur.
Með gjörningnum Passengers mun Kamile Pikelyte færa tímann í áþreifanlegt form með því að lífga upp fundin hræ og opna á gáttir upprisunnar. Gjörningurinn hefst kl. 17:15 á opnunardaginn, 24. júní.

Sýningarstjóri er Liisi Kõuhkna, listamennirnir sem taka þátt eru: Kamile Pikelyte, Wiola Ujazdowska, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kolbeinn Hugi, Unnur Andrea Einarsdóttir, Clare Aimée.
Sýningarstjórinn bauð tveimur listamönnum að taka þátt í gjörningaseríunni. Eins og í boðhlaupi færðu þeir kylfuna áfram til næstu tveggja listamanna, sem síðan buðu þeim eftirfarandi og svo framvegis.

Gjörningadagskrá
24.06.2023 kl. 17:15 — Kamile Pikelyte (LT/IS)
09.07.2023 kl. 16 — Wiola Ujazdowska (PL/IS)
15.07.2023 kl. 17— Katrín Inga (IS)
22.07.2023 TBA— Kolbeinn Hugi (IS/DE)
29.07.2023 kl. 15 — Unnur Andrea Einarsdóttir
03.08.2023 kl. 15:30 — Clare Aimée (CA/IS)
03.08.2023 kl. 17:00 — Umræðuviðburður, Agnes Ársælsdóttir stýrir.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page