top of page

Opnun sýningarinnar Volvox (Kyllir)

508A4884.JPG

fimmtudagur, 5. september 2024

Opnun sýningarinnar Volvox (Kyllir)

Listasafn Árnesinga, opnun 14.09 kl. 15:00

Lista og vísindamennirnir Thomasine Giesecke, / Jean-Marc Chomaz, @LadhyX / Bruno Palpant @ LuMIn, Université Paris-Saclay / Tom Georgel, hljóðlistamaður koma frá París með þessa spennandi rannsóknarsýningu.

Volvox (Kyllir) er samvinnuverkefni listafólks og vísindamanna frá Hydrodynamics Laboratory í Ecole Polytechnique (LadHyX), Light, Matter and Interfaces rannsóknarstofunni (LuMIn), og Institute of Physical Chemistry í Paris-Saclay háskólanum og Institut Polytechnique de Paris og innblásið af samnefndum, örsmáum þörungum. Þegar þessi græni ferskvatnsþörungur hreyfist veldur hann umróti hjá öðrum örverum, sem hreyfa sig í samstilltum hópi. Hingað er búið að flytja þetta fyrirbæri með því að nota nanóagnir úr gulli sem svífa í vatni. Vatnið er í glerhylkjum sem líða sjálf um í dansi sem er í senn samstilltur og handahófskenndur, inni í gegnsærri kúlu sem snýst. Með því að breyta sjónarhorninu í tengslum við útbreiðslu ljóssins upplifa áhorfendur hve afstæðir litirnir geta verið, þegar gylltur breytist í bláan og appelsínugulan. Þetta helgast af ráðandi eiginleikum fyrirbæris í nanóögnunum sem kallast plasmónu-yfirborðsómun (SPR), sem hefur áhrif á bæði gleypingu og dreifingu ljóssins. Hljóðheimur Toms Georgel gerir upplifunina gagnvirka, þar sem áhorfendur hreyfa sig um í verkinu og endurskapa tilviljanakennd kynnin við djúpið.

Volvox-innsetningin sviðsetur dans í lokuðu náttumhverfi, eins og ósýnilegan dans einfrumungsörveranna sem þróast þöglar í sjávardjúpunum við óreglulegan takt hringrásar þar sem snúningsáttin breytist stöðugt – volvox. Hér nýtum við ótrúlega sjónræna eiginleika tvílitra gull-nanóagnanna sem svífa í blásnum glerdropunum, sem sjálfir svífa um líkt og á hafsdjúpi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page