top of page

Opnun myndlistarsýningar | SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. október 2023

Opnun myndlistarsýningar | SJÁÐU FEGURÐ ÞÍNA

Myndlistarsýningin, Sjáðu fegurð þína, opnar í sýningarsal Borgarbókasafnsins Gerðubergi fimmtudaginn 26. október, kl. 17:30-19:00. Um er að ræða fyrstu einkasýningu með myndverkum og skúlptúrum Kristínar Ómarsdóttur, rithöfundar, ljóð- og leikskálds.

Sýningin er upptaktur að ritþingi um skáldskap og listferil Kristínar, sem verður haldið laugardaginn 28. október 2023 í Tjarnarbíói í Reykjavík á vegum Borgarbókasafnsins, kl. 14:00-17:00.

Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún hefur skrifað innan ólíkra bókmenntategunda allt frá árinu 1985; ljóð, leikrit, skáldsögur, smásögur og býr yfir einstakri skáldskaparrödd, hefur verið afkastamikil á sínu sviði og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Fantasía skáldverka Kristínar hefur rætur líkt og tré í jörðu, áþreifanleg og djúphugul staðreynd sem allt vex af, lifir, elskar og deyr - og raunveruleiki mannanna lekur eins og segir í skáldsögunni Svanafólkið (2019).

Fyrsta verk hennar, leikritið Draumar á hvolfi (1985) hlaut fyrstu verðlaun í leikritasamkeppni Þjóðleikhússins, leikrit hennar, Ástarsaga 3 (1997) var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna og skáldsagan Elskan mín ég dey (1997) var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999. Þá hlaut Kristín Viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 1997. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin sem leikskáld ársins fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin árið 2008. Hún hefur fengið fjölda tilnefninga til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, m.a. fyrir ljóðabókina kóngulær í sýningargluggum (2017), sem hún einnig hlaut ljóðabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar og tekið þátt í sýningum.

Ritþinginu er ætlað að gera höfundarverki Kristínar ríkuleg skil, skyggnast inn í hugarheim listamannsins og samhliða opnar samnefnd sýning í sýningarsal Gerðubergs sem mun standa út árið 2023. Á sýningunni gefur að líta myndverk Kristínar sem og skúlptúra sem spanna nokkra áratuga skeið og gefa innsýn inn í fagurfræði hennar og skáldskaparheim.

Sýningin er einstök að því leyti að vera fyrsta einkasýning Kristínar sem þó hefur unnið að myndverkum sínum allan sinn feril og á því orðið stórt safn tví- og þrívíðra verka sem aldrei hafa komið fyrir sjónir almennings. Kristín nálgast myndsköpun sína á persónulegan máta, eru myndverk hennar samofin bæði skáldskapnum og einkalífi hennar sjálfrar. Sýningin skapar ný tækifæri til að kynnast höfundarverki skáldsins og henni sjálfri á forsendum myndlistar, en verkin búa yfir einstökum töfrum þess að vera sköpuð af persónulegri tjáningarþörf án þess að hafa sýningu sem útgangspunkt.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page