Opnun einkasýningar Andreas Brunner, Occult Architecture

miðvikudagur, 2. september 2026
Opnun einkasýningar Andreas Brunner, Occult Architecture
Við bjóðum öllum SÍM félögum á opnun þann 03. sepember kl: 17 - 19.
Andreas Brunner
Occult Architecture
03.09 - 27.09.26
Verið hjartanlega velkomin á opnun einkasýningar Andreas Brunner, Occult Architecture á fimmtudag kl. 17.
Andreas Brunner (f. 1988, Zürich) er myndlistarmaður búsettur í Reykjavík. Hann stundaði nám við Listháskólann í Lucerne og lauk meistaranámi í myndlist við Listaháskóla Íslands.
Andreas vinnur með fjölbreytta miðla, svo sem innsetningar, vídeó og skúlptúr. Síendurteknar aðgerðir, tilgangsleysi og húmorískur absúrdismi, nánast melankólískur myndar kjarna verka hans. Hann skoðar ýmis afbrigði merkingarsköpunar og hvernig menning þróast í tengslum við ólínulegan tíma. Þrá, eirðarleysi og hverfulleiki eru meðal þeirra viðfangsefna sem birtast í verkum hans, og þá sérstaklega hvernig þessi fyrirbæri endurspegla tilveruna og móta skynjun okkar á samtímanum.
Verk Andreasar hafa verið sýnd víða í Evrópu, meðal annars á Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Kling og Bang, Gerðarsafni og Norræna húsinu í Reykjavík (IS), Kunsthal Charlottenborg í Kaupmannahöfn (DK), 3_137 Exhibition Space í Aþenu (GR), U10 Art Space í Belgrad (RS), Kunstmuseum Luzern í Luzern, akku Kunstplattform í Emmenbrücke og Benzeholz – Raum für zeitgenössische Kunst í Meggen (CH) og Künstlerhaus Bethanien í Berlín (DE).
Á opnuninni verður einnig bókinni Substitute for a Sunset eftir Andreas fagnað. Bókin fer yfir 10 ára feril listamannsins og var hún gefin út fyrr í sumar af Spector Books og Kunstmuseum Luzern. Í bókinni eru textar eftir Eveline Suter, Jóhannes Dagsson, Mia Ćuk, and Pál Hauk.
Hlökkum til að sjá ykkur á fimmtudag!
