Opnun - Magnús Sigurðarson og Guðrún Marta Jónsdóttir

fimmtudagur, 13. júní 2024
Opnun - Magnús Sigurðarson og Guðrún Marta Jónsdóttir
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýninganna Silfurgjá eftir Guðrún Mörtu Jónsdóttur og Óþægileg blæbrigði eftir Magnús Sigurðarson fimmtudaginn 13. júní kl. 17 í Kling & Bang.
Tveir íslenskir listamenn af ólíkum kynslóðum takast endurtekið á við Ameríku í verkum sínum. Hugmyndir um vald, jarðfræðilega ást, skáldaða hugmynd um þjóð, hver hefur orðið, skemmtilega óvininn og Rómaveldi okkar tíma – er meðal þess sem kemur fyrir í verkum Magnúsar Sigurðarsonar og Guðrúnar Mörtu Jónsdóttur.
Í tilefni sýningarinnar kemur út vönduð sýningarskrá með viðtölum við listamennina.
Á lokadegi Listahátíðar, sunnudaginn 16. júní kl. 14 verður listamannaspjall með Magnúsi og Guðrún Marta fremur gjörning.