Opnun - Guðrún Bergsdóttir og Barbara Árnason

miðvikudagur, 30. apríl 2025
Opnun - Guðrún Bergsdóttir og Barbara Árnason
Verið hjartanlega velkomin á opnun tveggja nýrra sýninga í Gerðarsafni miðvikudaginn 30. apríl kl. 18:00. Yfirlitssýning á verkum Guðrúnar Bergsdóttur verður opnuð í austursal og sýning á verkum verkum Barböru Árnason verður opnuð í vestursal safnsins.
Gerðarsafn heiðrar Guðrúnu Bergsdóttur (1970–2024) og listferil hennar með yfirlitssýningu í sýningarstjórn Hildigunnar Birgisdóttur. Guðrún skapaði á jaðrinum, starfaði í hliðarsenu íslenskrar myndlistar en verk hennar töluðu inn í hjörtu ófárra sem fundu undur og innblástur í þeim. Í starfi óhefts huga sem lagði ekki upp með að brjóta reglurnar heldur bjó til sínar eigin. Þannig setja verk hennar mark sitt á íslenska listasögu þótt þau hafi orðið til í frelsi frá henni. Samhliða sýningunni kemur út bókin Hugarheimar sem fjölskylda Guðrúnar kom fallega til leiðar í samstarfi við Hörpu Björnsdóttur.
Barbara Árnason (1911-1975) spratt upp úr einu myndlistarumhverfi og skaut rótum í öðru. Hún var fædd í Hampshire í Suður-Englandi og ólst upp í samfélagi sem var í senn mótað af hraðri nútímavæðingu og ríkulegri menningarsögu þar sem skreytilist, myndlist og hönnun voru sjálfsagður hluti af hversdagslífi fólks. Barbara átti eftir að skapa sína eigin nálgun innan myndlistar sem fléttaði saman bakgrunn hennar og þau áhrif og hughrif sem hún varð fyrir á Íslandi. Barbara var fjölhæfur listamaður sem tókst á við sífellt nýja miðla af forvitni og færni en kjarninn var í því daglega, nálæga og fíngerða.
English
Welcome to the opening of two new exhibitions in Gerðarsafn, Wednesday 30th April at 6 p.m., the retrospective of Guðrún Bergsdóttir and an exhibition with works by Barbara Árnason.
Gerðarsafn honors Guðrún Bergsdóttir (1970–2024) and her artistic career with a retrospective exhibition curated by Hildigunnur Birgisdóttir. Guðrún worked on the margins, operating within the fringe scene of Icelandic visual art but her works spoke deeply to the hearts of many who found wonder and inspiration in them. She worked with an unbounded mind – not seeking to break the rules but rather to create her own. In this way, her works leave their mark on Icelandic art history, even though they were created in freedom from it. Along side the exhibition, the book Hugarheimar will be published, a beautiful undertaking by Guðrún’s family in collaboration with Harpa Björnsdóttir.
Barbara Árnason (1911-1975) emerged from one artistic environment and took root in another. Born in Hampshire in southern England, she grew up in a society shaped by rapid modernization as well as a rich cultural heritage where decorative arts, visual art, and design were an integral part of everyday life. She would go on to develop a unique artistic approach that wove together her background and the influences she encountered in Iceland. Barbra was a highly versatile artist who consistently approached new media with curiosity and skill but the core remained focused on the everyday, the intimate, and the delicate.