top of page

Opnun í Listasafni Reykjanesbæjar - TILEINKUN

508A4884.JPG

miðvikudagur, 15. nóvember 2023

Opnun í Listasafni Reykjanesbæjar - TILEINKUN

Opnun hjá Listasafni Reykjanesbæjar, þann 18.nóvember 2023, klukkan 14:00.

TILEINKUN
„Einhvers staðar inni í massanum sá ég endanlegt formið”
Þessi sýning er tileinkuð minningu Valgerðar Guðlaugsdóttur vinkonu okkar og samferðakonu í myndlistinni.
Innblástur og hugmyndir geta birst manni í ýmsum myndum og úr ólíkum áttum en hugmyndin að þessari sýningu spratt úr draumi sem einum sýningarstjóra dreymdi um rauða litinn sem Valgerður notaði í fjölda verka sinna. Það má segja að þessi sýning sé ávöxtur þessa draums.

Sýningarstjórarnir: Anna Hallin, Olga Bergmann og Guðrún Vera Hjartardóttir.

Þær völdu 8 listamenn á stefnumót við verk Valgerðar og með því vildu sýningarstjórarnir búa til samhengi – tvinna saman ákveðna frásögn og samtal við aðrar sterkar listakonur af ólíkum kynslóðum.

Listaskonurnar eru Brák Jónsdóttir, Hildur Henrýsdóttir, Hildur Hákonardóttir, Inga Svala Þórdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Rakel McMahon, Rósa Sigrún Jónsdóttir og Sigrún Gyða Sveinsdóttir.

Sýningin stendur til og með 11.02.24.

Dagskrá:
Sýningarstjórar segja frá tilurð sýningarinnar, TILEINKUN.
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar opnar sýninguna.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page