top of page

OPNUN: Solander 250: A Letter From Iceland and Paradise Lost - Daniel Solander’s Legacy

508A4884.JPG

þriðjudagur, 15. ágúst 2023

OPNUN: Solander 250: A Letter From Iceland and Paradise Lost - Daniel Solander’s Legacy

Laugardaginn 19. ágúst kl. 14 býður Listasafn Ísafjarðar ykkur velkomin á opnun tveggja sýninga á annarri hæð í Safnahúsinu Eyrartúni. Þær eru Solander 250: Bréf frá Íslandi og Paradise Lost – Daniel Solander’s Legacy og eru unnar í samstarfi við sendiráð Svíþjóðar á Íslandi og félagið Íslenska grafík. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að 2022 eru 250 ár liðin frá fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands, 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl Linnaeus, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og félagar komu að landi í Hafnarfirði og ferðuðust til Bessastaða, Þingvalla, Geysis, Skálholts og klifu að lokum Heklu, áður en þeir héldu heim á leið. Þeir skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands, menningu, siði og klæðaburð. Tíu íslenskir grafíklistamenn frá Íslenskri grafík túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð.

Samtímis verður sýningin Paradise Lost opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders.

ÞÁTTTAKENDUR

SOLANDER 250: BRÉF FRÁ ÍSLANDI: Anna Líndal, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Daði Guðbjörnsson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Iréne Jensen, Laura Valentino, Soffía Sæmundsdóttir, Valgerður Björnsdóttir og Viktor Hannesson.

PARADISE LOST - Daniel Solander’s Legacy: Sharnae Beardsley Dagmar Dyck, Tabatha Forbes, John McLean, Alexis Neal, Jo Ogier, Jenna Packer, John Pusateri, Lynn Taylor og Michel Tuffery.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page