OPNUN: BOOK SPACE - Elín Hansdóttir

fimmtudagur, 12. júní 2025
OPNUN: BOOK SPACE - Elín Hansdóttir
Listasafn Ísafjarðar býður gesti hjartanlega velkomna á opnun einkasýningar Elínar Hansdóttur: Book Space. Opnunin fer fram 17. júní kl. 14:30 í sýningarsal safnsins á annarri hæð í Safnahúsinu á Ísafirði.
Í tilefni þess að Safnahúsið fagnar 100 ára afmæli verður einnig opið hús í húsinu frá kl. 14:30–17:00 með ýmsum viðburðum. Gestum verður boðið upp á afmælisköku og kaffi, auk þess sem hægt verður að skoða alla króka og kima hússins eftir umfangsmiklar endurbætur.
Book Space er þátttökulistaverk eftir Elínu Hansdóttur sem hefur ferðast milli bókasafna víðs vegar um Evrópu frá árinu 2005. Kjarna verksins mynda 2.000 auðar bækur sem hafa verið til útláns á opinberum bókasöfnum — bækur sem bjóða gestum ekki upp á að lesa, heldur að skrifa, teikna eða leggja til hugmyndir sínar fram á hvaða hátt sem þeir kjósa.
Verkið umbreytir hefðbundnum rýmum passívar þekkingarsöfnunar í virkar arkívur persónulegrar tjáningar. Bækurnar verða marglaga handrit sem mótast yfir tíma og bjóða upp á skynræna andstæðu við stafræna miðla samtímans. Book Space ögrar hugmyndum um höfundarétt, vald og mörk milli lesanda og höfundar. Með því að blanda saman röddum gesta verður verkið að lifandi, lýðræðislegu listaverki – í senn persónulegt, ljóðrænt og óútreiknanlegt.
Verkið hefur verið sett upp víða um Evrópu, þar á meðal á bókasöfnum innan fangelsis og endurhæfingarmiðstöðva - þar sem það endurskilgreinir hlutverk bókasafna í menningu samtímans. Í stað þess að vera fyrst og fremst varðveislustaður fyrirframgefins efnis, verður Book Space að virku rými samskipta, sköpunar og viðveru, þar sem merking mótast í sífellu af þeim sem þar staldra við.
Elín Hansdóttir (f. 1980) hefur á ferli sínum sem myndlistarmaður unnið á víðu sviði margvíslegra miðla; ekki síst við stórar innsetningar sem umlykja áhorfendur, skúlptúra, ljósmyndun og leikmyndahönnun. Í verkum sínum rannsakar hún skynjun, rýmislega áttun og sálfræðileg áhrif arkitektúrs með inngripum í fyrirliggjandi rými. Elín hefur ekki einungis sinnt listsköpun sinni í galleríum og listasöfnum, heldur hefur hún einnig hannað leikmyndir fyrir leikhús og sviðsverk, þar sem áhugi hennar á frásagnarformi og rýmistengdri spennu hefur haldið áfram að þróast. Hún hefur sýnt víða á alþjóðlegum vettvangi, en meðal þeirra helstu má nefna KW Institute for Contemporary Art í Berlín, Hamburger Bahnhof í Berlín, ZKM í Karlsruhe, Frieze Projects, Marrakech tvíæringinn, Martha Herford safnið, Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands.